Freyr - 15.02.1964, Page 6
60
FRE YR
stækka og sveitirnar minnka. Það er hægt
með því að efna til viðræðufunda á líkan
hátt og Stúdentafélag Reykjavíkur efndi til
í Reykjavík, laugardaginn þann 9. febrúar
sl., en sá fundur var haldinn í Lídó í Reykja-
vík og þar munu hafa mætt allt að 400
manns úr sveitum og úr Reykjavík, en flest-
ir þó úr borginni, bæði „gamlir sveitamenn"
og svo þeir, sem hafa áhuga fyrir þjóðmál-
um, því að ennþá eru þó mál landbúnaðar-
ins talin til þjóðmála og verða svo vonandi
framvegis þó að hópur þeirra, sem búskap
stunda, sé síminnkandi þjóðarbrot.
Umræðuefni dagsins, á nefndum fundi,
var um landbúnaðinn á íslandi í dag. Það
leyndi sér ekki, að hinn fjölmenni hópur,
sem þar var saman kominn, hafði áhuga
fyrir málefninu og eflaust mætti víðar í
bæjum og þorpum landsins taka mál þetta
til meðferðar og þannig veita þeim, sem í
bæjunum búa, nokkra innsýn í þau verk-
efni dagsins í íslenzkri sveit og málefnaleg
viðhorf þar, sem eðlilegt er að hver þjóð-
félagsborgari afli sér á einhvern hátt.
Og það eru til fleiri leiðir, sem miðað geta
að því að efla skilning og þekkingu gagn-
kvæmt á þeim viðhorfum, er blasa við frá
bæjardyrum hinna ýmsu stétta og hinna
einstöku þjóðarbrota. Kynning á aðstöðu
heimila og heimilishátta, uppeldis og
menntunaratriða og menningarmála, sem
tengd eru við heimilin í sveit og í bæ, þarf
einnig að gerast gagnkvæmt.
í öðrum löndum, þar sem fjörðurinn er
orðinn breiður milli frænda og víkin víð-
feðm vina í milli, hafa gagnkvæmar kynn-
ingaraðferðir verið reyndar og þótt vel
reynast er hópur húsmæðra úr borginni
hefur dvalið á sveitaheimilum, ein kona á
hverju heimili, svo sem viku tíma og þann-
ig gefist tækifæri til að fylgjast með gangi
starfsins og heimilislífsins í heila viku, og
við eigin sjón og raun þannig fengið stað-
fest, hvað gerist frá morgni til kvölds á
heimili með allt aðra aðstöðu og allt annað
umhverfi en hún þekkir heima hjá sér.
Til þess að jafna metin hafa svo hús-
mæður sveitanna fengið tækifæri til jafn
langrar dvalar á heimilum í borginni og
fylgzt þar með athöfnum við þröng húsa-
kynni, þröngar götur og allt annað eins og
það nú er í borginni, og þannig komizt í
kynni við veruleikann eins og hann birtist
þar í hversdagsönn og á hvíldarstundum.
Það skal hér sagt, að fjarlægðin milli
bæj afólks og sveitafólks í gömlum og grón-
um erlendum borgum, er mun meiri en
ennþá gerist hér á landi, firðirnir eru þar
orðnir að flóum, en að hinu sama miðar í
þjóðfélagi okkar, og ör sérhæfni í störfum
styður að því að fjarlægðin vaxi. Því verður
ekki betur séð en að hver sú viðleitni, sem
sýnd er til þess að efla skilning og tryggja
samúð milli stétta og milli þjóðarbrota, er
búa við hin ólíku lífsskilyrði og ólíka stað-
háttu, sé allrar virðingar verð og fremri
skólahaldi sem menntunar- og menningar-
auki.
Það má að sjálfsögðu finna fleiri leiðir,
en hér hefur verið á drepið, til þess að efla
samúð, auka skilning og viðhalda vináttu
milli einstaklinga og stétta í bæ og í sveit,
en á þessu stigi máls eru hér nefndar þær,
sem auðveldar eru í framkvæmd og væn-
legar til árangurs, en þær eru þessar:
1. Umræðufundir í sveit og í bæ um mál-
efni stéttanna.
2. Dvöl barna og unglinga í sveit og sveita-
barna í kaupstöðum.
3. Gagnkvæmar heimsóknir húsmæðra í
sveit og í kaupstað. G.