Freyr - 15.02.1964, Blaðsíða 20
74
FREYR
að orði komast. Hitinn í kartöflugeymslunni
er hækkaður skyndilega í ca 15°C stuttu
fyrir niðursetningu (10—12 dögum), og
strax og spírurnar eru sýnilegar er hann
lækkaður á ný í ca 10°C. Aðferð þessi er
ekki vinnufrek, m. a. vegna þess, að ekki
er gert ráð fyrir að útsæðið sé sett í spír-
unarkassa.
ÁBURÐUR
Hollendingar telja sig nota allmikið magn
áburðar við ræktun kartaflna. Almennt er
leitast við að bera nokkuð á af búf j áráburði,
einkum þar sem jarðvegur er mjög send-
inn. Sömuleiðis er algengt á leirjörð að
rækta við og við grænfóður og plægja það
niður. Þó er algengast að notast við tilbú-
inn áburð eingöngu. Af köfnunarefni er al-
gengast að bera á sem svarar 330—340 kg
kjarna (100—150 kg Nitrat) pr. ha, breyti-
legt eftir því hvaða jarðvegur á í hlut. Þar
sem ræktun útsæðis fer fram er yfirleitt
ekki ráðlagður hærri skammtur af N en
sem svarar 330 kg/ha. Yfirleitt er mjög
algengt við útsæðisræktunina að fjarlægja
kartöflutoppana, eða merja þá í sundur,
löngu áður en kartöflurnar hafa tekið út
fullan vöxt. Er því augljóst, að slík ræktun
notar ekki eins af N og sú, sem hefur tæki-
færi til að ná fullum þroska, eða því sem
næst. Að auki veldur mikil N-gjöf örum og
miklum blaðvexti, en slíkt getur torveldað
það þýðingarmikla starf að fylgjast með
ýmsum varasömum og hættulegum kvill-
um eins og veirusjúkdómum. Einnig seink-
ar hnýðismyndun mjög þegar mikið köfn-
unarefni er annars vegar.
Um fosfór- og kalíáburð gildir að sjálf-
sögðu einnig, að magn það, sem borið er á,
fer mjög eftir því í hvers konar jarðvegi
ræktunin fer fram. Mjög er algengt að
ræktendur láti athuga reglulega innihald
jarðvegs af P og K og er sú þjónusta veitt
öllum gegn vægu gjaldi. Venjuleg fosfór-
gjöf svarar til 100 kg P2O3 pr. ha (ca 220
kg 45% þrífosfat). Kalímagnið er breyti
legt frá 0—300 kg K2O5 pr. ha. Þótt nú
orðið tíðkist æ meir að nota alhliða áburð-
artegundir við kartöfluræktun eru einhliða
tegundir þó enn mest í notkun.
Hirðing og hreinsun og heilbrigðiseftirlit er auðvelt ef skipulega er sett niður.