Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1964, Blaðsíða 15

Freyr - 15.04.1964, Blaðsíða 15
FRE YR 139 næturhiti allt of lágur, verða stöngulliðir stuttir og blöðin smá; aldinmyndun verður meiri, en uppskeru seinkar. Framleiðendur verða samkvæmt þessu að leitast við að finna hinn rétta milliveg, þótt slíkt geti reynst erfitt. Lofthiti í sól er hæfilegur 24— 28°, í dimmviðri 18—20° og hiti að nóttu 17 —18° er líður á vorið og dagar eru orðn- ir langir. Við jarðvegshitann ráða fæstir á meðan ekki er farið að nota upphitunar- kerfi í jarðveginum eins og víða tíðkast er- lendis, þegar gúrkur eru ræktaðar snemma. Undir 16° jarðvegshita byrja gúrkurætur að deyja.Sé vökvunarvatnið mjög kalt og jarð- vegshiti að auki í lægsta lagi, getur kæling á rótum orðið það mikil, að vaxtartruflanir verði. Reynið því að ylja nokkuð vatnið ef unnt er. Áburð á gúrkur er bezt að gefa með hliðsjón af efnagreiningu sem þarf að láta gera reglulega. í síðasta lagi 3 vikum eftir gróðursetningu er rétt að láta athuga bæði Lt., N og K og síðan á þriggja vikna fresti fram eftir sumri. Fosfór er oftast gef- inn í það ríkum mæli strax í upphafi, að vart ætti að gerast þörf að athuga það oft yfir vaxtarskeiðið. Sýrustigið ætti vart að breytast mikið yfir sumartímann, a.m.k. ekki þar sem kalksaltpétur er notaður. I venjulegri grasrótarmold er það hæfilegt um 6.5. Þar sem moldarblanda saman- stendur að mestu af mýrarmold, er hæfi- legt að pH sé um 6.0. Hafið gát á roðamaur, svælið til vara með Tedion við og við. Svæfi- lyf verka bezt við nokkuð háan hita (22— 25°C). Rótarhálsrotnun (Fusarium) sækir á gúrkur í stöku gróðrarstöð. Þar sem hennar gætir er óbrigðulasta ráðið að nota ágrædd- ar plöntur. Sé þetta ekki gert, þá verður að forðast mjög háan hita 30°) og mjög háa nitrattölu. Hangi plöntur í sólskini, þá er til bóta að vökva með upplausn af pano- drench eða orthocid 50 eða 85. BÆNDUR: NÐ VIÐ Hafið þið athugað það, að vínnulaunin eru hin sömu, hvort sem girt er með góðu efni eða lélegu, eða um helmingur kostnaðar. fáið traustari girðingar, sem þurfa minna viðhald og standa miklu lengur, ef notað er gott efni. höfum selt girðingarefni til íslands um 40 ára skeið (sbr. „Mjólkurfélagsnet- in“). Spyrjið þá sem reynsluna hafa, og biðjið kaupmann ykkar eða kaup- félag að panta netin frá okkur.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.