Freyr - 15.04.1964, Side 27
F R E Y R
151
MENN og MÁLEFNI
í öndverðum febrúar s.l. var ÓLAFUR E. STEFÁNSSON, ráðu-
nautur, settur búnaðarmálastjóri um óákveðinn tíma í forföllum
Halldórs Pálssonar.
í kveðjuhófi Búnaðarþings 6. marz s. 1. afhenti formað-
ur Búnaðarfélags íslands, Þorsteinn Sigurðsson, Búnaðar-
félaginu ljósmynd af Sigurði Jónssyni, bónda í Stafafelli í
Lóni, ásamt mynd frá Stafafelli. Myndir þessar eru gjöf frá
Búnaðarsambandi Austur-Skaftfellinga og eru gefnar Búnað-
arfélagi íslands Sigurði til sæmdar, fyrir margháttuð störf
hans í þágu félagsmála bænda, og jafnframt í tilefni þess,
að Sigurður vakti fyrstur manna máls á að reisa hús bænd-
anna, sem nú er Bændahöllin.
Þorsteinn þakkaði Búnaðarsambandinu gjöfina og Sigurði
hugsjón hans, og árnaði honum heilla,
G. Jós.
Um miðjan marz lézt íslandsvinurinn ÓLAV KLOKK, sem
um áratugi var ritari Landbúnaðarháskólans á Ási í Noregi.
Ólav Klokk fæddist 3. sept. 1885. Hann var sonur skóla-
stjóra á Stend og kynntist mörgum íslenzkum námsmönnum,
er stunduðu búnaðarnám á æskuárum Ólavs Klokk. Þannig
var vakinn hjá honum áhugi fyrir Islandi og Islendingum.
Traustur Islandsvinur var hann til hinztu stundar og greiddi
á margan hátt götu Islendinga, er til Noregs komu. Fyrir-
greiðsla og aðstoð hans er vandmetin en mikil var hún og
hið íslenzka heiðursmerki, er hann hlaut, var verðugur þakk-
lætisvottur frá íslenzkri þjóð, en hann var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu.
Klokk heimsótti fsland nokkrum sinnum og skrifaði um
land og þjóð í norsk rit. Þrátt fyrir 78 ára aldur var hann
enn starfandi að áhugamálum og hné örendur á ferðalagi
er hann var að gegna hlutverki af því tagi. Blessuð sé hans
minning. G. K.