Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1968, Side 4

Freyr - 01.02.1968, Side 4
GUNNAR GUÐBJARTSSON: um gang VERÐLAGSMÁLA LANDBÚNAÐARINS haustið 1967 Inngangur Að þessu sinni hefur verðlagning búvöru tekið lengri tíma en nokkru sinni áður, síð- an lögin um Framleiðsluráð landbúnaðar- ins tóku gildi árið 1947. Það má segja, að vinna við verðlagningu hafi verið samfelld frá því um 20. ág. til 20. des. Eins og venja hefur verið undanfarin ár, var aflað margvíslegra upplýsinga, svo sem um rekstursniðurstöðu úr skattskýrslum bænda fyrir árið 1966, svo og niðurstöðum búreikninga, ennfremur skýrslna um þróun tekna viðmiðunarstéttanna á sama ári svo og um breytingar tímakaups. Þá gaf Hag- stofa íslands upplýsingar um magn þess kjarnfóðurs og áburðar, er selt var í land- inu á s.l. ári, um búfjárfjölda, svo og um verðlagsbreytingar á rekstrarvörum land- búnaðarins. Niðurstaða úrtaksskýrslna um búrekst- ur bænda fyrir árið 1966 sýndi, að meðal- búið vantaði um kr. 65.000,00 í brúttótekj- urnar, miðað við verðlagsgrundvöllinn, sem ákveðinn var þá, en um kr. 72.000,00 á nettótekjur bændanna, þó ekki sé tekið tillit til vaxta af stofnfé (bæði eigin fé og lánum) né heldur til afskrifta af útihúsum. Þetta er miklum mun lakari niðurstaða, en varð árið á undan. Yirðist skýringin á lækkun brúttóteknanna vera sú, að afurðir urðu með minnsta móti, garðrækt brást nær alveg, sláturfé var með rýrasta móti og mjólk nokkru minni en árið áður. Auk þessa mun einhver lækkun hafa orðið á útborgunarverði, bæði vegna verðfalls á ull, gærum og hlunnindavörum og vegna minni fjárhagsgetu mjólkurbúa og slátur- leyfishafa til að greiða út verðið, jafnóð- um og varan kemur til sölumeðferðar. Þar veldur nokkru um vaxandi birgðasöfn- un, vegna sölutregðu á sumum vöruflokk- um, og þó að mestu vegna tregðu á að fá rekstrarfé að láni í bönkum. Lækkun nettóteknanna er í beinu sam- bandi við lækkun brúttóteknanna og til viðbóta kemur aukinn tilkostnaður vegna aukinnar kjarnfóður- og áburðarnotkunar á árinu. Samkv. upplýsingum Hagstofu ís- lands hefur kjarnfóðurnotkun og áburðar- notkun vaxið ár frá ári að undanförnu og meir en nemur framleiðsluaukningu sbr. upplýsingar frá aðalfundi Stéttarsambands bænda s.l. sumar. Aukning áburðar hefur verið 10—12% ár- lega, en aukning kjarfóðurnotkunar meiri, mismunandi eftir árferði og á síðasta ári 44% miðað við árið áður. Launatekjur viðmiðunarstéttanna höfðu hækkað yfir 22% á árinu 1966 og meðal- taxtar höfðu hækkað um tæp 20%. Samkv. breytingum þeim, sem gerðar voru á framleiðsluráðslögunum á árinu 1966, átti í haust að ákveða vinnumagn við búvöruframleiðslu og verðleggja vinnuna 60 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.