Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1968, Blaðsíða 23

Freyr - 01.02.1968, Blaðsíða 23
um fyrr en 1965, sem er í fullu samræmi við þá staðreynd, að smithættan frá heima- landinu á Skálpastöðum var mest árið 1963. Hrúturinn Freyr veiktist fyrstur af Kistu- fellsfénu og jafnsnemma veiktust hinir tveir aðkomnu sýningarhrútar. Freyr veikt- ist vorið 1964 og gat því ekki verið valdur að smitun hrútanna haustið 1962. Sama er að segja um aðra hrúta, sem á sýningunni voru, nema Skálpastaðahrútinn, sem var, eins og fyrr segir, þá þegar orðinn fárveik- ur af garnaveiki. Hann virðist því hafa verið einn um að smita sýningarféð og með þessari stuttu heimsókn í fjárhúsin á Kistu- felli orðið valdur að garnaveikisýkingu í búpeningi á þremur nýjum bæjum. Áður hefir verið lýst að nokkru tilraun- um til að kveða niður garnaveikisýkingu í fé á þessum bæjum. Þótt vel tækist til á Krossi og Oddsstöðum, reyndist veikin í fénu á Kistufelli ekki viðráðanleg. Smit- ið hafði gengið örara en gert var ráð fyrir í upphafi og ekki verið aðstaða til að ein- angra tafarlaust allar kindur, sem sýndu útkomu við blóðpróf. Stundum hafði einn- ig liðið of langur tími milli prófanna. Smit hélzt því stöðugt við í fjárhópnum, þótt nið- urstöður blóðprófanna reyndust sæmilega öruggar. Haustið 1965 var almennt hafizt handa um bólusetningu gegn garnaveiki á lömb- um og veturgömlu fé innan svæðisins. Vet- urinn 1965—’66 fundust garnaveikar kind- ur í fénu í Fossatúni og í Múlakoti. Þá um vorið var gerð tilraun til að einangra veikt og grunað fé í girðingarhólfi á eyðibýlinu Gröf í Lundarreykjadal. Þessi tilraun fór því miður út um þúfur, því að fátt náðist af fénu í þessa girðingu, en sumt slapp út eða drapst, án þess að líffæraskoðun yrði við komið. Haustið 1966 var loks gripið til þess ráðs að slátra öllu fé, sem eftir var óbólusett á þeim bæjum, þar sem garnaveiki hafði orð- ið vart. í stað þess voru sett á lömb og þau bólusett gegn garnaveiki. Niðurstöður af garnaskoðun á þessu fé koma fram í töflu IV. Einnig var gerður samanburður á út- komum við blóðpróf og garnaskoðun við ákvörðun á garnaveiku fé, og sýnir tafla V niðurstöður þeirra athugana. Tafla IV Tíminn frá Féð smitast Gamaveiki finnst Slátrun fer fram Sýkt fé við smiti til Bæir árið árið árið slátrun slátrunar Skálpastaðir .... .. (1959) 1962 1963 52 15% um 4 ár Kistufell .. 1962 1964 1966 12 14% 4 ár Kross 1964 Oddsstaðir .... .. 1962 1964 Fossatún 1965 1966 7 8% um 3 ár Múlakot 1965 1966 7 6% um 3 ár Ath.: Ártöl í svigum merkja, að ekki er vitað með vissu, hvenær smit barst fyrst í féð. Tafla V Samanburður á útkomu við blóðpróf gegn garnaveiki og niðurstöðum af líffœra- og sýklaskoðun við slótrun kindanna. Blóð- prófaðar voru alls 218 fullorðnar kindur frá Fossatúni, Múlakoti og Kistufelli og blóðsýni tekin um leið og fénu var slátr- að i Borgarnesi haustið 1966. Útkoma við blóðpróf: Niðurstöður af líffærarannsókn: -f 0.5 stig eða meira ........ 23 kindur 17 garnaveikar (= 74%) 1 með grun um byrjandi skemmdir ____ 5 heilbrigðar -í- 0.0 stig ................. 195 kindur 2 garnaveikar 5 með grun um byrjunarskemmdir 188 heilbrigðar (= 97%) F R E Y R 79

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.