Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1968, Side 5

Freyr - 01.02.1968, Side 5
eftir kaupgjaldstöxtum verkamanna, sjó- manna og iðnaðarmanna. Af þeim ástæðum fóru fram á árunum 1966 og 1967 mælingar á vinnu við ýmis bústörf og átti að hafa þessar mælingar ásamt vinnuskýrslum bú- reikninga til hliðsjónar við ákvörðun vinnumagnsins í haust. Aðalfundur Stéttarsambandsins var hald- inn dagana 2.—4. sept. s.l. Stjórn Stéttar- sambandsins þótti rétt að draga að leggja tillögur sínar um verðlagsgrundvöllinn fyrir sexmannanefnd, þar til fundurinn hefði sagt sitt álit um meðferð málsins. Tillögur um verðlagið og meðferð þeirra Fulltrúar framleiðenda lögðu sínar tillögur því fram í sexmannanefnd 5. sept. Þeir reyndu með þeim að ná upp því, sem á vant- aði í framleiðslukostnaði samkv. rekstrar- niðurstöðum ársins á undan og þeim af- urðamismun, er þá var sýnilegur, þó mið- að við meðaltal 5 ára, svo og það, sem á vantaði að bóndinn og skyldulið hans fengi kaup í samræmi við aðrar stéttir, miðað við vinnumagn búreikninga á meðalbúi og kaupgjaldstaxta í Reykjavík á fyrsta árs- fjórðungi 1967. í þessum tillögum fólst því veruleg hækk- un á búvöruverði frá því, sem verið hafði. Fulltrúar neytenda tóku sér frest til að athuga tillögurnar og vildu ekki koma með gagntillögur fyrr en fyrir lægju niðurstöð- ur vinnumælinganna. En uppgjör þeirra dróst óeðlilega og var ekki tilbúið fyrr en 22. sept. Þegar þær lágu fyrir og höfðu verið ræddar, kom í Ijós, að fulltrúar neyt- enda vildu engu breyta til hækkunar á verðlagi og töldu, að verðstöðvunarlögin heimiluðu ekki neinar verðlagsbreytingar. Fulltrúar framleiðenda skírskotuðu bæði til 4. gr. framleiðsluráðslaganna um rétt bænda til að hafa sambærilegar tekjur við aðrar stéttir og til skýrslna um tekjur bænda og viðmiðunarstéttanna fyrir s.l. ár, sem sýndu, að viðmiðunarstéttirnar höfðu um það bil tvöfaldar tekjur á við bændur. Jafnframt töldu þeir, að í verðstöðvunar- lögunum væri heimildarákvæði um óhjá- kvæmilegar verðbreytingar, sem skylt væri að nota, þegar svo stæði á eins og hér væri. Eftir allmikið þjark var málinu vísað til sáttasemjara ríkisins. Fyrsti fundur með sáttasemjara var haldinn 26. sept. Þá gaf hann fulltrúum neytenda vikufrest til að gera tillögur af sinni hálfu. Hinn 6. októ- ber voru þær lagðar fram. Þær fólu í sér verulega lækkun afurðaverðs til bænda. Þá þótti fulltrúum framleiðenda sýnt, að enginn samningsgrundvöllur væri fyrir hendi. Sáttasemjari reyndi þá miðlun á þeim grundvelli, að verðlag yrði óbreytt frá fyrra ári. Þeirri tillögu var að sjálfsögðu hafnað. Málinu var þá vísað til úrskurðar í yfirnefnd 11. okt. Jafnframt því, að ágreiningur kom fram um gerð sjálfs verðlagsgrundvallar, varð ágreiningur um hvernig skrá skyldi ullar- og gæruverð til bænda. Eins og kunnugt er hafði verð þessara vara lækkað mjög mikið erlendis og taldi Samband ísl. sam- vinnufélaga, að erlend sala gæti aðeins skil- að kr. 8,30 pr. kg ullar og 19,96 pr. kg gær- anna. Fulltrúar framleiðenda gerðu þetta að sínum tillögum um þetta efni, en fulltrú- ar nevtenda lögðu til, að verð þessara vara yrði óbreytt frá fyrra ári, þ. e. 33,00 kr. pr. kg gæranna og 25,00 kr. pr. kg ullar. Þessu atriði var líka vísað til úrskurðar yfirnefnd- ar. Skipun yfirnefndar og störf hennar Framleiðendafulltrúar völdu Inga Tryggva- son, bónda á Kárhóli, af sinni hálfu í yfir- nefndina. Fulltrúar neytenda völdu Árna Vilhjálmsson, prófessor, við viðskiptadeild Háskóla íslands, en nefndin kom sér saman um Hákon Guðmundsson, borgardómara, sem oddamann nefndarinnar. Nefndin hóf störf sín 15. okt. og ræddi málin nokkra daga. Tók hún síðan frest til 1. nóv. Á þessum tíma voru til umræðu ráðagerðir ríkisstjórnarinnar um ýmsar 61 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.