Freyr - 01.11.1968, Page 8
vænta, og er einmitt þess vegna ástæða fyr-
ir okkur til að fylgjast vel með og reyna þá
tækni sem bezt er þekkt hverju sinni.
* * *
Búnaðarþing 1965 gerði ályktun, þar sem
því var beint til stjórnar Búnaðarfélags ís-
lands að láta fara fram athugun á hag-
kvæmni þess að framleiða hér grasmjöl og
grasköggla bæði með tilliti til fóðurbirgða
og hugsanlegs útflutnings á vörunni. Stjórn
Búnaðarfélags íslands skipaði nefnd til að
kanna málið, og störfuðu þeir í henni ráðu-
nautarnir Ásgeir L. Jónsson og Jónas Jóns-
son og Páll Sveinsson, landgræðslustjóri.
Nefndin skilaði ekki áliti fyrir Búnaðarþing
1967, þar sem henni var þá kunnugt um, að
væntanleg var í Danmörku skýrsla um
heildarrannsókn á málinu, þar í landi, og
taldi rétt að bíða hennar. Sú skýrsla kom
út haustið 1967. Þá kom á sama tíma skýrsla
frá Bútæknistofnuninni við Landbúnaðar-
háskólann í Noregi um sama viðfangsefni
og var í henni gerð nákvæm áætlun yfir
framleiðslukostnað á graskögglum í mis-
munandi stórum verksmiðjum. Nefndin afl-
aði sér síðan þeirra heimilda, sem fáanlegar
voru um þessa starfrækslu hér á landi og
skilaði skýrslu til Búnaðarþings 1968. Hér
fer þá á eftir stuttur útdráttur úr skýrslu
nefndarinnar til Búnaðarþings.
Skýrgreining hugtaka.
Grasmjöl — vögglar — kögglar.
Nafngiftir á framleiðslu þeirri, sem hér
um ræðir, hafa verið nokkuð á reiki og er
því rétt að gefa skýringu á því, hvernig
nöfnin verða notuð hér á eftir.
1. Hraðþurrkun er það, þegar þurrkað er
við mikinn hita í sérstökum þurrkara gagn-
stætt súgþurrkun í hlöðu, sem ýmist getur
verið með hituðu eða köldu lofti.
2. Grasmjöl er hraðþurrkað malað gras.
3. Heymjöl er hey, sem ekki er hrað-
þurrkað, en malað.
4. Vögglar eða grasvögglar eru pressaðir
saman úr grasmjöli í þar til gerðum press-
um. Þeir eru venjulega sívalir bútar allt að
20 mm í þvermál og lengdin heldur meiri en
þvermálið. Ekki er hægt að pressa í vöggla-
pressum annað en fínmalað efni.
5. Heyvögglar yrðu á sama hátt til úr
fínmöluðu heyi.
6. Kögglar eða graskögglar eru pressaðir
saman með miklum þrýsingi úr söxuðu
(bútuðu) hraðþurrkuðu grasi, og eru ýmist
sívalir eða strendir. Þvermál þeirra er að
jafnaði meira en vögglanna eða 20—100
mm og þykkt svipuð þvermáli.
7. Heykögglar eru pressaðir úr söxuðu
heyi.
(í Ameríku tíðkast að pressa saman hey,
sem þurrkað hefur verið úti. Vélum, sem
taka heyið beint af jörðinni, og pressa það
er ekið á flekk eða múga. Einnig má pressa
hálf-eða lítið þurrkað gras, en þá þarf að
þurrka kögglana á eftir. Þessi aðferð er lít-
ið reynd.)
Rúmþyngd.
Rúmþyngd á heyi í hlöðu er 90—130 kg/m:1
og lítið meiri á vélbundnu heyi. Grasmjöl
hefur rúmþyngd 300—400 kg/m3, en við að
vöggla það, vex hún í 600—700 kg/m3. Rúm-
þyngd á söxuðu, hraðþurrkuðu grasi, er
50—100 kg/nr' en í kögglum er hún 400—
600 kg/m3.
Þróunin erlendis.
Framleiðsla hraðþurrkaðs grasfóðurs hef-
ur farið vaxandi að undanförnu. í dönsku
skýrslunni er eftirfarandi yfirlit gefið yfir
framleiðslumagn í nokkrum Evrópulöndum
árið 1965, talið í 1000 smálestum.
Danmörk 120
V estur-Þýzkaland 35
Holland 120
Frakkland 180
Ítalía 80
Bretland 100
430
F R E Y R