Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1968, Page 14

Freyr - 01.11.1968, Page 14
framleiðslunnar við innflutt fóður, verða þessi meðal höfuðatriðanna. Líkur benda til þess, að með þremur sláttum fáist heldur minna þurrefnismagn af hverjum ha, en sennilega þó ekki minna fóðurmagn, vegna meiri fóðurstyrkleika. Ræktunarkostnaður er hér yfirleitt lág- ur, og á sumum tegundum lands mjög lág- ur. Áburðarkostnaður er aftur hár fyrir hverja uppskerueiningu, en þó mjög mishár eftir landi og oftast í öfugu hlutfalli við ræktunarkostnaðinn. Þetta yrði sjálf- sagt íslenzkri framieiðslu í óhag, og stafar bæði af mikilli áburðarþörf íslenzks jarð- vegs, einkum þó þörf fyrir N-áburð og háu áburðarverði hér. Brennsluolía. Nú eru nær einvörðungu notaðir svokallað- ir sívalningsþurrkarar til hraðþurrkunar. Brennara er komið fyrir við enda þurrk- sívalnings og sogast loftið beint úr loganum inn í hann. Hráefnið kemur inn um hlið sama enda og leikur því heitasta loftið um grasið meðan það er rakast. Lofthitinn við inntakið er frá 700—1200 °C, og er stillan- legur með olíugjöf í brennara, eftir því hve grasið er blautt. Hitinn í grasinu á ekki að fara yfir 90°C, við hærri hita til lengdar verða óæskilegar efnabreytingar í hráefn- inu og veldur það minni meltanleika Við góða nýtingu á olíunni í þessum þurrk- urum eyðast 850—870 gr af olíu fyrir hvert kg af vatni, sem þurrkað er úr grasinu. Olíukostnaðurinn fyrir hvert kg af fram- leiðslunni fer eftir því hve mikill rakinn er í hráefninu og svo olíuverði. Það er at- hyglisvert, hve mikil áhrif það hefur ef hráefnið er mjög blautt. Sem dæmi er tek- ið, að aukist vatnsamagn hráefnis, t. d. úr 77,5% í 82%, eykst það vatn, sem fjarlægja þarf fyrir hvert kg framleiddrar vöru um 33%. Olíunotkun reynist nokkru minni hér en áætlað er í Noregi. Þar er hún áætluð 418 g af olíu á hvert kg framleiðslu, en í Gunnarsholti og á Stórólfsvelli er hún ná- lægt 300 gr fyrir hvert kg. Bendir þetta til þess, að undanfarin sumur hafi hráefnið verið þurrara hér en talið er meðallag í Noregi. Olíukostnaður fyrir hvert kg framleitt hefur verið sem hér segir: í Danmörku (meðalt.) 1965 20-32 au/kg í Noregi (áætlun) 1966 45 — Á Stórólfsvelli 1964 39 — — __ 1966 38 — Á Gunnarsholti 1967 49 — Raforka. Allmikla raforku þarf til framleiðslunnar, sérstaklega eru það hreyflar, sem knýja myllur og kögglapressur, sem eru orkufrek- ir. Hér hefur þetta reynzt mjög hár út- gjaldaliður, og lítið lægri en olían. Þetta mun aðallega stafa af háu fastagjaldi, sem hér er lagt á eftir hestaflatölu hreyflanna. Auðsjáanlega nýtur slíkur verksmiðju- rekstur betri kjara við raforkukaup í Dan- mörku og Noregi en hér á landi. Um það bera eftirfarandi tölur um raforkukostnað vitni, en hann hefur orðið sem hér segir, fyrir hvert kg framleiðslunnar: í Danmörku (meðalt.) 1965 7 au/kg í Noregi (áætlað) 1966 9-11 — Á Stórólfsvelli 1964 33 — — — 1966 34 — Á Gunnarsholti 1967 32 — Umbúðir og geymsla. Köggla er hægt að geyma lausa, ef geymsl- an er þurr. Danir telja, að geymsla í sekkj- um muni verða hagkvæmust, Umbúða- kostnaður hefur orðið hár liður hér, eink- um á Stórólfsvelli, enda er þar um mjöl að ræða, sem hefur mikið meiri fyrirferð en kögglarnir. Umbúðakostnaður: í Danmörku (meðalt.) 1965 7 au/kg Á Gunnarsholti 1967 16 — Á Stórólfsvelli 1966 32 — 436 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.