Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1968, Page 18

Freyr - 01.11.1968, Page 18
eftir þeim leiðbeiningum, sem þeir hafa fengið frá ráðunautum og ræktunarsér- fræðingum og með þeirri reynzlu í ræktun sem þeir sjálfir búa yfir, hefur kal ennþá herjað á íslenzkan landbúnað og nú á síð- ustu tveimur árum hafa jafnvel orðið ennþá meiri skaðar af völdum kals en urðu árið 1952 og jafnvel meiri, en nokkru sinni áður. Þetta uppskerutjón nemur nú tugum milljóna. Tjónið 1952 var um 30 milljónir eftir mínu mati, en tjónið nú er mun meira í einstaka héruðum, enda þótt það sé ekki eins víðtækt yfir allt landið og það var þá. Við landsmenn stöndum enn ráðalitlir gegn þessum skaðvaldi, enda þótt við vitum að nokkru leyti hvar orsakanna er að leita. Veðurfarið getum við seint ráðið við og veðráttan í ár hefur verið einmuna erfið fyrir grasgróður og grasvöxt. Snjóar og svellalög hafa legið yfir hinum marflötu túnum, sem er óeðlilegt yfirborð þessa gróðurlendis við íslenzkar aðstæður, því raunverulega ætti þetta gróðurlendi að vera þýft. En á sléttlendinu hafa svellin náð að kæfa, slíta og kremja gróður, sem áður hefur orðið illa undir veturinn búinn fyrir margskonar áhrif þess búskaparlags, sem við stundum (svo sem vegna mikillar ein- hæfrar köfnunarefnisnotkunar, vegna notk- unnar þungra heyskapar- og hirðingar- tækja, vegna ofnotkunnar túnanna á óheppilegum tímum, síðsláttar og beitar o. s. frv. Ekkert eitt atriði er hér allsvaldandi og er hér mörgum samverkandi áhrifum um að kenna. En sérhver þáttur, sem stuðlar að því að veikja vetrarþol jurtanna stuðlar einnig að auknu kali. Gróðurtoppamir eru aðeins vinjar í auðninni 440 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.