Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1968, Page 20

Freyr - 01.11.1968, Page 20
Þessar rannsóknir stuðla mjÖg að því að auka heyfeng á hvern hektara lands og varna því að aukið tjón verði af völdum kals. Af útreikningum á meðaluppskeru heys í hestum á hektara eins og hún var á öllu landinu á árunum 1943—1966, sést hve töðu- fengur er skertur þau árin sem tún hefur kalið. Nemur það uppskerutjón milljónum króna þau árin sem tún hafa kalið. Til dæm- is er tjónið 1962 áætlað um 50 miljónir króna. Ef unnt væri að minnka svo alvar- legt tjón með notkun harðgerðari grastofna væri mikið áunnið í ræktunarmálum. Mikil notkun köfnunarefnisáburðar í formi því, sem er í kjarna (amoniumnitrat) hefur mjög verið umdeild. Tilraunir frá Hvanneyri hafa einkum sýnt, að einhæf notkun kjarna á grassvörð stuðlar að kali borið saman við grassvörð sem fengið hef- ur kalksaltpétur einkum þar sem um stóra skammta er að ræða (240 kg/ha af N). Þessi svörun er mjög greinileg á Hvann- eyri í tilraun, sem staðið hefur í 7—8 ár, en varast ber að taka þetta sem algildar niður- stöður því sambærilegur árangur hefur ekki fengist af sömu tilraun frá öðrum til- raunastöðvum. Er hér þó eitt dæmi um áþreifanlegan kalvald. Önnur athugun frá Hvanneyri ber mjög vott um þvað þjöppun af traðki og vinnu- vélum stuðlar að aukningu kalsins, og er það annað áþreifanlegt dæmi um kalvald. Fjármagn til kalrannsókna. Rannsóknarstofnun landbúnaðarins hefur hlotið nokkuð fé til beinna kalrannsókna, sem beint hefur verið til athugunar á Norð- ur og Norðausturlandi. Á síðastliðnum F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.