Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1968, Blaðsíða 23

Freyr - 01.11.1968, Blaðsíða 23
grösin nokkru fyrir upptöku eins og oft er gert í hlýrri löndum. — Oft er spurt hvort óhætt sé að þvo kartöjlur eftir upptöku. Þessu fylgir a. m. k. ein hætta, þ. e. kart- öflurnar verða næmari fyrir birtu en ella og hættir til að grænka í bjartri geymslu eða t. d. í gegnsæjum umbúðum. V. Óbragð í kartöflum. Alkunnugt er að kartöflur verða bragð- vondar í blautum jarðvegi og ef ofmikill köfnunarefnisáburður er notaður. Ýmis efni geta og valdið óbragði í kartöflum o. fl. rótarávöxtum, t. d. olía, lýsi, kjötsalli, beinamjöl og fiskimjöl. Ekki má láta kart- öflur í áburðarpoka, allra sízt kalíáburðar slíkt getur bæði valdið óbragði og hýðis skemmdum líkt og salt. Notið jafnan hreina poka. Ógætileg notkun olíubrennara í geymslu getur valdið óbragði og skemmd- um á hýði kartaflna. Margs er að gæta. VI. Geymsluskemmdir og kvillar. Kartöflur rýrna og léttast jafnan í geymslu, en mjög mismikið eftir aðstæðum. Kartöfl- ur eru lifandi verur, þær anda og léttast við það. Samkvæmt sænskum tilraunum léttast þær um 1.4% í 3° hita 1.8% í 5° hita og 2.6% við 10° hita á C, miðað við 6 mán- aða geymslu. Mjölvi breytist í sykur, sem notaður er sem orkugjafi við öndunina og eyðist. Jafnframt gufar vatn út úr kartöfl- unum og þær taka til sín súrefni. Nokkur hiti myndast. Ekki er hægt að hindra önd- unina með öllu og verður jafnan að vera nægilegt súrefni, svo að kartöflurnar kafni ekki og dökkni að innan. Er hættan lang- mest í hlýrri geymslu. Kartöflur gefa frá sér vatn við öndunina og það gufar líka út úr þeim og því meir sem loftið í geymslunni er þurrara og hlýjara. Mest vatn gefa kart- öflur frá sér fyrsta mánuðinn í geymslunni, eftir upptöku. Síðan minnkar útgufunin þegar hýðið þykknar og sár gróa, en það gerist fljótast ef sæmilega hlýtt er á kart- öflunum fyrstu vikurnar eftir upptöku. — Kartöflur spíra venjulega ekki fyrr en 2—3 mánuðum eftir upptöku. Þó er þetta tals- vert breytilegt eftir tegundum og þær þurfa líka mismikinn hita til að spíra, en algengt er að til þess þurfi 5° hita eða meir. Hæfi- legur geymsluhiti skal vera lægri, eða 2—5° þegar fram á vetur kemur. Kartöflur sem orðið hafa fyrir hnjaski við upptöku eða flutning, geymast mun verr en ella, þær léttast mjög við útgufun um sárin á hýðinu og smitast auðveldlega af sjúkdómum, því að gerlar, sveppar o. s. frv. eiga greiða leið inn gegnum sárin. Sjúkdómar valda oft miklum skemmdum í geymslu, einkum ef hún er of hlý og rök. Mestan usla gerir stöngulsýkin (votrotnun- unin), sem gerlar valda, að jafnaði og verð- ur að forðast að láta stöngulsjúkar kartöfl- ur lenda í geymslu með heilbrigðum kart- öflum. Allar kartöflur undir stöngulsjúku grasi eru smitaðar, hvort sem verulega sést á þeim við upptöku eða ekki. í hlýrri og rakri geymslu getur rotnunin orðið mjög ör og eyðilagt mikið á skömmum tíma. Vilsa úr sjúkum kartöflum sígur niður og smitar frá sér. Kartöflumygla ágerist líka mjög í of hlýrri og rakri geymslu, ekki svo mjög af því að kartöflurnar smiti hver aðra, heldur magnast þessi þurra rotnun í þeim kartöfl- um sem þegar voru smitaðar í garðinum, étur sig inn og getur gereyðilagt þær, þótt lítt eða ekki hafi séð á þeim við upptöku. Ef mygla er í kartöflugrösunum, sér venju- lega á sumum kartöflum við upptöku, en miklu fleiri geta verið nýlega smitaðar, þótt ekki sjái á þeim. Eina vörnin er þá þurr, loftgóð og svöl geymsla, helzt í rimlaköss- um eða rimlastíum. Þéttir rakir pokar eru óhæf geymsluílát þegar svona stendur á. Stundum komast votrotnunargerlar í myglublettina og kemur þá fram votrotnun. Á tímabilinu 1918—1967 hafa komið 12 skæð mygluár. Kartöflumyglunnar hefur orðið vart um land allt en hún hefur aðeins gert skaða í lágsveitum á sunnanverðu landinu. F R E Y R 445

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.