Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1968, Page 38

Freyr - 01.11.1968, Page 38
M°L^R Áburðarkaup fyrir vorið 1969. Áburðarverksmiðjan h.f. hefur sent áburðarnotend- um bréf, þar sem þeir eru hvattir til að huga snar- lega að undirbúningi áburðarpantana fyrir næsta ár, og ljúka frágangi þeirra fyrir 1. des. n. k. Gert er ráð fyrir, að af áætlaðri N-notkun lands- ins 1969, verði tæp 30% innflutt í eftirfarandi á- burðartegundum: Kalkammonsaltpétur 26%, kalsi- um-nítrat 15,5% (Noregssaltpétur), túnáburðar- blanda 22-11-11 að viðbættum 2,7% brennisteini, svo og tvígildar blöndur 26-14-0 og 22-22-0. Tekið er fram, að ef óskir eru fyrir hendi af hálfu notenda um, að einhvers hluta N-áburðar verði aflað í öðr- um tegundum, verði reynt að mæta slíkum óskum. Að öðru leyti er reiknað með, að rösklega 70% af N-áburðarþörfinni verði mætt með notkun kjarna. Klórsúrt kalí verður nú allt flutt inn í styrkleika 60% K=0 og verður reynt að afgreiða það allt gróf- kornað. Um brennisteinssúrt kalí gildir sama og áður, það er aðeins fyrir hendi í fínkornuðu ástandi, og sem 50% K=0. Fosfórsýruáburðurinn mun verða í þrífosfati, og í 45% P^Os, styrkleika eins og endranær, en þó mun leitazt við að mæta beiðnum notenda um útvegun annarra tegunda, svo sem superfosfats 18% P^Oj, ef þess er sérstaklega óskað. Tekið er fram, að reynt verði að sjá til þess, að megin hluti hins innflutta áburðar verði afgreiddur í polyethylene pokum eins og í vor er leið. Að öðru leyti bendir Áburðarverk- smiðjan á, að sé þess óskað, muni hún annast milli- göngu um útvegun áburðarkalks frá Sementsverk- smiðju ríkisins á Akranesi. Orkuneyzla S'amkvæmt skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum „World Energy Supplies" (orkubirgðir heimsins) 1963—1968 jókst orkuneyzla heimsins um 17% á þessu tímabili. í skýrslunni segir að á árunum 1963 —1936 hafi notkun á jarðgasi aukist um 27%, og notkun brennsluolíu um 26%, en fast eldsneyti að- eins um 6%. Hlutur jarðgass fer ört vaxandi og nam á árinu 1966 18% af orkuframleiðslu heimsins. Fljótandi eldsneyti nam 38% af framleiðslunni en fast eldsneyti 42%. Árið 1966 jókst raforkunotkun í heiminum um 8% frá árinu á undan. Heimsnotk- unin nam samtals 3,602 milljörðum kílowatta-stunda en 27% af orku þessari fékkst frá vatnsaflstöðvum. í Noregi var raforkuneyzlan mest, nam hún 12.809 kílowattstundum á hvern íbúa. Meðalrafmagns- notkunin á hvern jarðarbúa var aftur á móti 1077 kilowattstundir. í einstaka vanþróuðu landi var þó ársnotkunin á íbúa ekki nema tvær kilowattstundir. Af samanlagðri orku heimsins notuðu Bandaríkin árið 1966 35%, Sovétríkin 15%, Japan 5,8%, Bretland 5,6% og Vestur-Þýzkaland 5,1%. Yffirlýsing Stjórn Stéttarsambands bænda hefur á fundi sínum í dag, 1. október 1968, tekið til athugunar hinn nýja verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara, sem úrskurðaður var í yfirnefnd 25. f. m. Telur stjórnin rétt, að eftirfarandi atriði komi fram. 1. Magn tilbúins áburðar telur stjórnin of lágt áætlað. 2. Fyrningarkostnaður véla er ekki í samræmi við vélaþörf bús af þeirri stærð, sem ákveðin er í grundvellinum. 3. Vextir eru í algjöru ósamræmi við fjármagnsþörf grundvallarbúsins. 4. Vinnumagn í launakostnaðarliðnum er mun minna en búreikningar og vinnu- mælingar benda til að þörf sé fyrir á búi af þessari stærð. Sérstaklega vill stjórnin benda á þá staðreynd, að sé fjármagskostn- aður lítill, hlýtur vinnuaflaþörfin að auk- ast að sama skapi. Stjórn Stéttarsambandsins telur þær breytingar, sem nú hafa orðið á verðlags- grundvellinum vera til bóta, þótt hún telji hins vegar ekki horfur á, fyrst og fremst af þeim ástæðum, sem þegar hafa verið tald- ar, að verðlagsgrundvöllurinn tryggi bænd- um tekjujafnrétti við hinar svokölluðu við- miðunarstéttir, sem þó er lögum samkvæmt meginverkefni þeirra, sem verðlagsgrund- völl ákvarða á hverjum tíma. f. h. stjórnar Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson Sæm. Friðriksson 460 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.