Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1971, Síða 3

Freyr - 01.03.1971, Síða 3
LANDVERND - LANDGRÆÐSLA Ekki getur leikið nokkur vafi á því, að landnemarnir komu hingað að gróðurklæddu landi og viði vöxnu langt út yfir þau svæði, sem nú eru algróin. Vel má vera, að um þœr mundir er landið var numið, hafi veðurfar ■verið hagstœðara og nokkru mildara en nú gerist, en engum vafa er það bundið, að kuldaskeið og önnur óár- an, á vissum tímum íslandsbyggðar, hafa valdið því, að land blés upp og gróður þvarr. Búseta fólksins hefur og að sjálfsögðu átt sinn þátt í gróðureyðingu. Þátt veður- farsins þekkja menn í þessu sambandi á vissum stöðum, svo sem þegar efri hluti Rangárvallasýslu varð sandi orpinn á stórum svæðum í eyðileggjandi sandstormi síðla á síðustu öld, einmitt það landssvœði, sem stórvirk- astar framkvæmdir hafa verið gerðar og eftirtektarverð- astur árangur hefur náðst í landgrœðslu hérlendis síð- ustu árin. Alþekkt er, að á einhverju skeiði íslandssögunnar hafa býli og byggðir verið inn til dala og uppi til heiða þar sem nú er autt land og eyðimörk. Þetta gildir í upp- löndum Þingeyjarsýslu, Árnessýslu og ekki sízt um Möðrudalsöræfi og um Jökuldalsöræfi, að ógleymdu héraðinu milli sanda þar sem nú er Oræfasveit. Heilar sveitir eru auðn ein nú þar sem fyrr var góð byggð. Atferli náttúruaflanna og mannanna hafa lagzt á eitt um að rýra gróðurlendi og landgœði. Það er því ekki óeðlilegt að hugur ýmissa hneigist nú að því, að bætt verði fyrir unnin spjöll og viðleitni sýnd til þess að græða þau foldarsár, sem gróa megi og þær auðnir, sem nú eru eyðimörk ein. „Sú kemur tíð er sárin foldar gróa“ kvað Hannes Hafstein um aldamótin síðustu. Við skulum vona, að sú tíð sé að renna upp þessi ár. Sauðahald er horfið, sauðirnir voru annars harðir við landið af því að mennirnir sýndu þeim harðneskju og létu þá berja gaddinn eða farast úr ófeiti annars, ef þeir gátu ekki bjargað sér sjálfir. Naprir vindar geta enn nagað svörð ef ekkert er gert til að takmarka það gnauð. „íslandi allt“ var kjörorð ungmennafélaganna við upp- haf þeirrar hreyfingar. Þetta má vel vera kjörorðið framvegis á sama vettvangi og svo i búðum sérstakra félagssamtaka og raunar þjóðarinnar allrar í sveit og á sjávarströnd. Markmiðið að grœða það land allt, sem einu sinni var gróðri klœtt, það er háleitt hlutverk að vinna að. Leggjumst þar öll á eitt! G. FREYR BÚNAÐARBLAÐ Nr. 5. Marz 1971. 67. árgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON PÁLMI E I NARSSON Ritstjórn: GÍSLI KRISTJÁNSSON (ábyrgðarmaður) ÓLI VALUR HANSSON Hoimilisfang: PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK Askriftarverð kr. 300 árgangurinn Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bœndahollinni, Reykjavík — Sími 19200 PrentsmiSja Jóns Helgasonar Reykjavík — Sími 38740 E F N I : Lanudvernd — landgrœðsla Endurvinnsla túna og grasfrœ Hálmur sem byggingarefni Síldarmjöl eða olíukökur Fjósverkin Húsmœðraþáttur Kýrin leggzt og rís á fœtur Arferði og rœktun Útlönd Molar F R E Y R 91

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.