Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 5

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 5
búfjáráburð undir þökurnar og það var áríðandi að gera slétturnar þannig úr garði, að yfirborðsvatn fengi sem minnst viðnám. Höfum við svo notfært okkur þessa reynzlu í nútíma ræktun? Af framanskráðu má augljóst vera, að mikið af nýyrkju okkar, þótt slétt sé, getur ekki ennþá talizt ræktun, og eitt af stóru vandamálunum í túnrækt okkar er að koma henni sem fyrst í rækt og með sem auðveldasta móti. Við vitum ekki gerla hve langan tíma það tók að breyta móunum í gamla daga úr óræktarkarga í ræktað tún- þýfi, en við vitum, að þessi breyting var bæði fólgin í myldingu jarðvegsins og breytingu gróðursins. Þegar við nú breyt- um mýri í tún, þá hefst fyrsti þáttur breytingarinnar með uppþurrkun. Sé hún nægileg þá breytist mýratorfið smám sam- an í mold eða fúið torf, en við það losna frjóefni jarðvegsins og verða aðgengileg gróðrinum. Þetta tekur að vísu, hér á landi, langan tíma, en við getum flýtt þessari ummyndun með jarðvinnslu og notkun rétts áburðar á réttan hátt. Gróðurfarinu reynum við hins vegar að ráða með því að sá fræi í flögin af þeim jurtum, sem við viljum rækta og höldum að geti vaxið þar, en til þess að það lánist, verður jurta- val okkar að miðast við íslenzkt veðurfar og allur undirbúningur að vera þannig, að jarðvegurinn veiti þeim, sem hagstæð- ust vaxtarskilyrði. Það er því ljóst, að visst samhengi verður að vera milli undir- búnings jarðvegsins og jurtavalsins. Þegar þetta er athugað er engin fjar- stæða að láta sér til hugar koma, að nokk- uð af misfellum og áföllum nýyrkju okkar megi rekja til ófullnægjandi ræktunar, og vona ég þá, að öllum sé orðið ljóst hvað ég á við með ræktun. Þörfin á endurvinnslu Takmark okkar hlýtur að vera að koma nýyrkjunni sem fljótast í rækt. í þessum tilgangi hefur forræktun, þ. e. ræktun ein- ærra jurta og endurtekin bylting jarðvegs- ins í eitt aða fleiri ár, áður en grasfræi var sáð, verið nokkuð reynd, en með mis- jöfnum árangri. Hefur illgresi, sem oft breiðist út í flögunum meðan á forrækt- uninni stendur, einkum valdið þessu, en fleira getur þó komið til greina, svo sem oftæting, óhentugur vinnslu- og sáðtími, röng notkun búfjáráburðar o. fl. Önnur aðferð, sem líkleg gæti verið til árangurs, er endurvinnsla túnanna, og þá einkum ný- yrkjunnar, á fárra ára fresti. Sumir munu halda því fram, að ekkert sanni það, að endurvinnsla sé nauðsynleg eða æskileg. Það má rétt vera, að þörf endurvinnslu verði ekki studd beinum tilraunum, en þó er nú æði margt, bæði í tilraunum og praktiskri reynslu, er hvet- ur til hennar og skal nú hið veigamesta rakið: 1. Svo sem þegar hefur verið bent á, tekur raunveruleg ræktun jarðvegsins langan tíma og því lengri, sem hann er rætnari í upphafi. Þessi breyting jarðvegs- ins er að nokkru háð þeirri meðferð, er hann fær, en líka gerlastarfsemi og rótum þeirra jurta, er í honum vaxa. Nú er það vitað, að rotnun torfjarðvegs er mjög hæg hér á landi, en hún er forsenda þess, að slíkur jarðvegur láti í té frjóefni sín og verði hagkvæmur vaxtarstaður túngróð- urs. Til þess að flýta slíkri ummyndun ætti endurvinnsla og veðrun sú og myld- ing, er henni fylgir, að vera æskileg og hagkvæm. 2. Kalskemmdirnar munu vera sá þátt- urinn, er oftast kallar á endurvinnslu tún- anna, en nokkuð er þetta misjafnt frá einni byggð til annarrar og jafnvel frá einu býli til annars. Það er líka mjög á reiki hvenær grípa skuli til endurvinnslu af þessum ástæðum eða hvernig henni skuli hagað. 3. í nýræktum, sem gerðar hafa verið í mjög ósléttu landi, svo mikillar tilfærslu hefur verið þörf, verður oft missig, er gerir endurvinnslu nauðsynlega. Sama gildir auðvitað ef meiri háttar umbætur verður F R E Y R 93

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.