Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 16

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 16
Innflúenza á heimilum Hiti, höfuðverkur, beinverkir, hósti með stíflum í nefi, sviði í hálsi og fyrir brjósti, og þegar hitinn fellur, þreytutilfinning og stundum þunglyndi. /Áilt eru þetta fylgi- fiskar inflúenzu. Ýmsar leiðir eru til að draga úr þessum einkennum með nærgæt- inni heimahjúkrun. Hiti Sjúklingar með inflúenzu fá alltaf háan hita, iðulega 39—40 stig, sérstaklega fyrstiu 2 sólarhringana. iHitinn fellur oft á 3. degi, en meðan á honum stendur, fær sjúkl- ingurinn oft kölduköst; húðin ýmist brennandi heit eða böðuð svita. Sjúkling- ar með hita verða að liggja í rúminu. Hit- inn og vökvatapið veldur því iað munn- urinn verður þurr, tungan sár, þvagið dökkt með sterkri salmíakslykt; oft fylgir hægðaleysi. Vegna alls þessa verður sjúkllingurinn að fá mikinn vökva, allt að 2—2V2 1. af vatni á dag, sem ávaxtasaía eða í öðrum drykkjum, til að draga úr óþægindium. Hægt er að draga úr sárind- unum í munninum með því að skola hann með þunnum sítrónusafa eða natrónvatni (sódaduft), 1 tsk. í % 1. af vatni. Hitann má lækka með asperíni, codifeni eða öðr- um álíka töflum, sem draga jafnframt úr verkjunum. IÞað getur reynzt nauðsyn- legt að taka 1—2 töflur á 3. til 4. tíma fresti. Mjög háan hita má alltaf lækka með því að lauga allan líkamann upp úr svölu en ekki sárköldu vatni, og skipta jafnframt um nærföt. Öldruðu fóllki og börnum hætt- ir til að fá óráð með háum hita. Það fer þó af þeim um leið og hitinn lækkar, en sé líkaminn laugaður úr svölu vatni og kaldur klútur lagður á ennið, flýtir það fyrir 'lækkun hitans. HöfuSverkir — beinverkir Inflúenzunni fylgja verkir í höfði, augum, útlimum, baki og koma alls staðar sam- tímis, oft um leið og smitiun á sér stað; og þeir eru merki þess að rúmlega er nauð- synleg, því hiti fylgir fljótt á eftir. Lyfin, sem nefnd hafa verið, má taka eftir þörf- um á 3. tiil 4. tíma fresti, því venjullegir skammtar duga ekki lengur til að draga úr óþægindunum. Ekki er vert að taka verkjiatöfliur á tóman maga. Drekkið því með þeim glas af vatni, mjólk eða öðrum svaladrykk. Áfengi hefur ekkert gildi við inflúenzu, getur jafnvel aukið höfuðverk- inn og óþægindin af hitanum. Hósti og stíflur í öndunarfœrum Þurr og ertandi hósti og þrautir í brjóst- imu, sem eru algeng fyrirbæri með infflú- enzu, má milda með hóstasaft eða kvef- mixtúru, sérstaklega þegar mikill og ert- andi hósti truflar nætursvefninn, sem er svo mauðsynlegur fyrir batann. Þessi lyf á að taka eftir þörfum, til að mýkja hóst- ann. Oft er gott að setja skammtinn í V2 bolla af heitu vatni og dreypa hægt á. Þetta gefur oft góða fró. Heitir drykkir draga úr hósta. Öldruðu fólki hættir aílltaf 104 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.