Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 25

Freyr - 01.03.1971, Blaðsíða 25
panta fræið tímanlega. Undanfarandi ár hefur frost verið óvenju mikið í jörð og haldizt langt fram á vor og sumar. Af þeim sökum hefur jörð haldizt blaiut og ófær til jarðvinnslu langt fram á sumar, þetta hef- ur svo aftur tafið undirbúning og sáningu grænfóðurs. Við þessu er ekki annað ráð en að hafa landið sem mest tilbúið til sáningar að haustinu. Ef tíð leyfir og nokk- urt tóm gefst, ætti það að vera fastur lið- ur í hauststörfum að plægja og vinna land tiíl grænfóðurræktar fyrir næsta vor. Jarðvinnslutæki Oft stendur á tækjum til jarðvinnslu á vorin. Þegar allir vilja fá unnið og ganga frá flögum á sama tíma, hrökkva vélar og tæki ræktunarsambanda skammt. Varð- andi tæki tiil frágangs á landi og endur- vinnslu er um tvo kosti að vélja: Að rækt- unarsamböndin eða búnaðarfélögin eigi nógan tækjakost, til að sinna þessu, þ. e. hjóladráttarvélar, með viðeigandi plógum og herfum. Ef sá kostur er valinn, verður þó alltaf að skipuleggja þessa vinnu vél og all langt fram í tímann. Hinn kosturinn er sá, að bændur almennt eigi viðeigandi jarðvinnslutæki við heimilisdráttarvélar sínar, annað hvort hver fyrir sig eða fá- einir í fólagi. ■Nú eru heimilisdráttarvélar yfirleitt svo stórar, að þær valda vel hagkvæmum jarð- vinnslutækjum. Þau tæki sem nauðsynleg eru við heimilisdráttarvélar, eru fyrst og fremst plógur og herfi. Þetta eru ekki dýr tæki miðað við verðlag nú. Einskera plóg- ur 18“ kostaði á síðastliðnu hausti um 17.600 kr., en tvískeri 12“ um 22.000 kr. Hankmó-herfi, sem hafa reynzt mjög vel við endurvinnslu og frágang á landi, kosta um 25—28.000 kr., þau sem vel henta fyrir heimilisdráttarvélar. Hægt mun að fá stærri Hankmó-herfi fyrir stærri gerðir Með „flot“-hjólbör8um, má draga úr þjöppun, og jafnvel fara yfir blautt og viðkvæmt land. F R E Y R 113

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.