Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 30

Freyr - 01.03.1971, Qupperneq 30
Af Oi A R Leiðrétta ber meinlega prentvillu í grein Asgeirs Einars- sonar í FREY nr. 1. á síðu 6, 14 línu að ofan í fremra dálki. Þar stendur um eggjafjölgun í taði lambanna en á auðvitað að vera lam'bánna. Ein lítil komma getur gert meinlega villu eins og hér. Vinsamlega leiðréttið þetta lesendur góðir. Vantar unga bændur Það er víðar en á okkar landi, að bændastéttin er fyrst og fremst aldraðir menn og gamlir. í grannlöndum okkar eru ástæðurnar álíka. Danskar bújarðir eru nú taldar um 140.000 en aðeins 1000 ungir bændur hefja þar búskap árlega. Hlutfallið segir, að með því móti þyrfti hver að vera bóndi í 140 ár. Arangurinn verður auðvitað, að enn fleiri jarðir verða eyðibýli um sinn að minnsta kosti. Uppi eru þar í landi ráðstafanir til þess að hvetja 14—18 ára pilta til þess að búa sig undir búskapar- hlutverk. Árið 1967 voru um 3000 í hverjum þessara ár- ganga að undirbúa sig til bústarfa, nú aðeins 1550 á ári. Og auðvitað fer eitthvað af þeim aðra vegu en á bújarðirnar. Lífsgleði — Kona mín er á Mallorka og nýtur þar lífsins og unaðslegrar tilveru. — Og hvað svo með þig? — Ég er heima og nýt fjarvistar hennar. Land heitir hið nýja málgagn sænsku bændasamtak- anna, en það leysir af hólmi þau tvö málgögn, sem áður komu á prenti, annars vegar RLF-bladet og hins vegar Jordbrukarnas Föreningsblad. Hið nýja málgagn er í álíka broti og hin voru fyrr, og er gefið út í upplagi sem nemur hundruðum þús- unda, líklega á fjórða hundrað þúsund eintök, því að það hefur áskrifendur einnig í bæjunum; fyrir bæjarbúa eru viss atriði sniðin sérstaklega í efnis- röð málgagnsins. Svo sem áður hefur verið getið hafa umrædd tvenn samtök sænskra bænda nú verið sameinuð til einnar félagsheildar með eitt málgagn. Lantmannen kemur út eins og áður sem fagblað bændanna. Hagkvæm hestaverzlun Danska vikublaðið LANDSBLADET nr. 3 1971 segir frá því, að á síðasta ári hafi verið keyptir og fluttir til Danmerkur rúmlega 80 hestar frá Búlgaríu. Verð umræddra hrossa var svo hagstætt, að undrum sætir eða um 5600 ísl. krónur. Blaðið tjáir, að Danir selji afsláttarhross sín yfirleitt úr landi, þau munu flest eða öll fara á franskan kjötmarkað, og fyrir hvert hross til niðurlags hefur fengizt hærra verð en greiða þurfti fyrir þau, er inn voru flutt frá Búlgaríu, og voru þau þó talin góð og ágæt, hvort sem vera skyldi til vinnu eða undaneldis. Blaðlð tjáir, að nánari rannsóknir fari fram á umræddum viðskiptum. Vinnutími hænunnar Hænan leggur mikið á sig til að vinna fyrir mat sínum. Nærri hálfan daginn er hún þar að verki, sem fæðu er safnað eða 47% af vinnutímanum. Þá þarf hún 44% af deginum til þess að snyrta sig og punta fiðurklæðnaðinn. Nú hafa menn hæn- ur til þess að skiia eggjum, en til þess hlutverks fer ósköp lítill tími eða aðeins 0,3% af vinnudegi hennar. Þá eru eftir 6,7% af vinnutimanum, en til hvers hann er notaður er ekki gott að segja, um það er líklega bezt að spyrja á alifugladeild Búnaðarháskólans á Ási í Noregi, því að þar hafa vinnumælingar hænanna verið gerðar. Nýtt DDT lyf — saklaust Tvö áströlsk fyrirtæki í efnaiðnaði eru um þessar mundir að kanna nýjar gerðir meindýralyfja, sem talið er að muni ekki síður áhrifarík en DDT hefur reynzt, en eru þó laus við þau skaðlausu áhrif, sem komið hefur svo áþreifanlega í Ijós að DDT hefur. Það er efnafræðingurinn Hollan við TNO-stofnunina í Ástralíu, sem lengi hefur unnið að því að breyta gerð DDT, sem á heiðurinn af því grundvallarstarfi, sem unnið hefur verið á þessu sviði, og er nú að bera árangur. Hollan hefur tekizt að framleiða lyf, sem nú er verið að rann- saka af fullum krafti. Hið nýja efni verkar á taugakerfi skordýra á sama hátt og hið klassiska DDT, en klofnar langt um fyrr í skaðlaus efni. Fyrstu ummæli erlendra fagblaða eru á þá leið, að hin ástralska uppfinning feli í sér mikla mögu- leika gagnvart því að halda meindýrum í skefjum, án þess að óttast þurfi um önnur lifandi dýr eða hættulegar eftirverkanir. DDT safnast t. d. fyrir í fituvefjum mannslikamans. Upplýst er að enn séu tilraunir í fullum gangi, og í fyrsta lagi eftir hálft ár muni þeim lokið. Á meðan bíða ræktun- armenn átekta í von um að árangur verði já- kvæður. 118 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.