Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1971, Síða 26

Freyr - 01.09.1971, Síða 26
um eftirlaun samkvæmt II. kafla laga nr. lOI 1970 um Lífeyrissjóð bænda 1. gr. Eftirlaun skiptast í ellilífeyri og maka- lífeyri. Þeir, sem verið Inafa bœndur á lögbýlum og átt þar lögheimili, eiga rétt á ellilífeyri samkvæmt 4. gr., enda uppfylli þeir öll eftirtalin skilyrði: a. séu fæddir árið 1914 eða fyrr. b. hafi náð 70 ára aldri og látið af búskap. c. hafi verið bændur á lögbýlum í árslok 1967 og átt þar lögheimili. d. hafi áunnið sér réttindatíma samkvæmt 3. gr. Nú fellur bóndi, sem uppfyllt hefur skil- yrði 2. málsgr., frá eftir 31. desember 1969, og skal þá eftirlifandi maki eiga rétt á makalífeyri samkvæmt 4. gr., enda hafi hinn látni áunnið sér a. m. k. 5 ára rétt- indi samkvæmt 3. gr., liinn eftirlifandi maki sé eigi yngri en 35 ára við fráfall bóndans, hjónabandið hafi staðið a. m. k. 5 ár og verið stofnað, áður en sjóðfélaginn náði 60 ára aldri. Sambúð veitir sama rétt og hjúskapur, enda hafi skilyrðum 21. gr. laga nr. 101 1970 um Lífeyrissjóð bænda um tilkynningu til sjóðsins verið fullnægt. Því aðeins skal tekið tillit til óvíqðrar sam- búðar, sem átt hefur sér stað fyrir árslok 1970, að skrifleg tilkynning hafi borizt frá hlutaðeigandi bónda fyrir lok júnímánað- ar 1971, þar sem tilgreint sé, hve lengi sam- búð hefur staðið. Heimilt er stjórn sjóðins að víkja frá skilyrðum þessarar greinar um lögheimili, ef hlutaðeigandi bóndi hefur haft meiri hluta tekna sinna af búvöruframleiðslu. 2. gr. Við ákvörðun um, hvort umsækjandi um ellilífeyri eða sá, sem umsókn um maka- bætur er tengd við, telst bóndi á lögbýli eða hafa látið af búskap, skal að jafnaði farið eftir ábúendaskrá Landnáms ríkisins. Nú færir umsækjandi rök að því, að ekki hafi verið um rétta eða fullnægjandi skráningu að rœða hjá Landnámi ríkisins, og skal þá stjórn sjóðins úrskurða um líf- eyrisréttindi með hliðsjón af skattafram- tölum, landbúnaðarskýrslum og öðrum gögnum, er máli geta skipt. Á sama hátt skal stjórnin taka skráningu til athuganar og úrskurðar, ef gögnum ber ekki saman eða hún telur af öðru tilefni ástæðu til að œtla, að skráning hafi verið ófullnœgjandi eða röng. 3. gr. Til réttindatíma skal reikna þann tíma frá og með áriu 1955, sem hlutaðeigandi hefur verið bóndi á lögbýli og átt þar lögheimili eftir 55 ára aldur. Réttindatími reiknast í mánuðum frá 1. janúar 1955 eða 1. næsta mánaðar eftir, að 55 ára aldri er náð, eftir því, sem við á, til loka þess mánaðar, er látið er af bú- skap. Ef ekki er Ijóst, á hvaða tíma árs bóndi hefur látið af búskap, skal miðað við 31. maí. Búskapartími eftir 70 ára aldur reiknast með réttindatíma, en þó getur samanlagður réttindatími aldrei orðið lenqri en 20 ár. Heimilt er stjórn sjóðsins að víkja frá skilyrði 1. málsgr. um lögheimili, sbr. síð- ustu málsgr. 1. gr. Nú heldur kona áfram búskap að bónda 'sínum látnum og tekur ekki makalífeyri, og er þá heimilt að reikna henni réttindi fyrir tíma, er maður hennar var skráður fyrir búinu, enda hafi hún sjálf verið bóndi a. m. k. 5 ár eftir fráfall hans. Þó skal sá 374 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.