Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1971, Page 28

Freyr - 01.09.1971, Page 28
I almemnfi búfraeði Um skeið hefur verið um það rætt meðal kennara á Hvanneyri og annarra, að þörf væri á því að koma á fót búfræðinámskeiðum við bændaskólana. Hlut- vcrk þeirra gæti verið tvenns konar: I fyrsta lagi að lengja búfræðinámið frá því sem nú er, um allt að því 1 vetur. og stuðla á þann hátt að því, að búfræðingar verði betur að sér. í öðru lagi að veita eldri búfræðingum, svo og bændum yfirleitt, kost á því að auka þekkingarforða sinn og fylgjast með framförum á sviði búfræðinnar. Mál þetta hefur verið rætt við fyrrverandi og nú- verandi landbúnaðarráðherra, þá Ingólf Jónsson og Halldór E. Sigurðsson, svo og ráðuneytisstjóra Gunnlaug E. Briem. Hafa þeir allir tekið máli þessu vel og tjáð sig því fylgjandi. Hefur Iandbúnaðar- ráðuneytið ákveðið að hafist verði handa í þessu efni á Hvanneyri í vetur (1971—1972) með tak- markaðan fjölda nemenda, ef þáttaka fæst. Nám- skeiðin verða 3 alls, og standa hvert þeirra í um það bil 6 vikur. Kennsla verður ókeypis. Fyrirkomulag námskeiðanna er hugsað þannig: Námskeið í jarðræktarfræði, cr hefjist í byrjun nóvember. Námskeið í búfjárrækt, er hefjist upp úr áramótum. Námskeið í bútækni og byggingum, er hefjist í scinni hluta febriiarmánaðar. Nemendur geta eftir vild tekið þátt í einu nám- skeiðanna eða fleirum, eftir því sem rúm leyfir. Reynt verður að haga náminu þannig, að það verði sem mest hagnýtt, en þó að mestu leyti framhald af venjulegu búfræðinámi. Þeir búfræðingar (eða aðrir), sem hafa hug á að sækja ofangreind námskeið, sendi umsókn fyrir 20. sept. til undirritaðs, þar sem m. a. sé greint frá aldri og menntun. Guðm. Jónsson, Hvanneyri. skilyrði jyrir eftirlaunarétti. Til þeirra, sem síðar öðlast rétt til ejtirlauna, greiðast þau jrá 1. nœsta mánaðar eftir, að þeir öðlast þann rétt. Aldrei skal úrskurða líj- eyri lengra aftur í tímann en tvö ár. Ejtirlaun greiðast ejtir á jyrir hvert greiðslutímabil, er stjórn sjóðsins ákveður. Þó skal eigi greitt oftar en mánaðarlega og eigi sjaldnar en ársjjórðungslega. Heimilt er stjórn sjóðsins að semja við Búnaðarbanka íslands um, að bankinn annist greiðslu líjeyris jyrir sjóðinn sam- kvæmt reglugerð þessari. Skal þá bankinn gera ársjjórðungslega kröfu á hendur rikis- sjóði, sem greiðir 62,5% útgjalda, og Stojn- lánadeild landbúnaðarins, sem greiðir 37,5% útgjalda. Skal miðað við, að þessir aðilar geri skil á áætluðum útgjöldum hvers ársjjórðungs ásamt endanlegu upp- gjöri jyrir nœsta ársjjórðung á undan eigi síðar en tveim vikum jyrir lok ársjjórð- ungsins. 7. gr. Umsóknir um ejtirlaun skulu ritaðar á eyðublöð, er stjórn sjóðsins lætur gera. Umsœkjendum er skylt að svara öllum spurningum og veita þær upplýsingar, sem nauðsynlegar eru til þess, að hœgt sé að úrskurða um ejtirlaunarétt. Telji stjórn sjóðsins upplýsingar um ein- hver þau atriði, er máli skipta um eftir- launarétt, vera ójullnægjandi, skal hún jresta úrskurði, unz úr hejur verið bœtt, eða miða greiðslu við þann rétt, sem ó- tvíræður er. Stjórnir búnaðarjélaga skulu láta stjórn sjóðsins í té skrár um þá, sem þær telja, að rétt eigi til ejtirlauna. Reglugerð þessi er sett samkvœmt 24. gr. laga nr. 101 1970, um Líjeyrissjóð bænda, og öðlast gildi þegar í stað. , Reykjavík 7. júlí 1971. 376 F * E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.