Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1971, Blaðsíða 36

Freyr - 01.09.1971, Blaðsíða 36
50000 MILLJÓNA KRÓNA VIRÐI Samkvæmt síðustu hag-skýrslum Hollendinga er verðmæti garðyrkjuframleiðslu þeirra það, er fyr- irsögnin greinir frá. Hlutur grænmetisframleiðsl- unnar nemur tæplega helming af þessari upphæð, en þar af er þáttur gróðurhúsaafurða um 60%. Að öðru leyti eru verðmæti hinna stærri fram- leiðslugreina garðyrkjunnar sem hér segir: Blóm, allskonar 10589 milljónir króna Blómlaukar 6200 — — Ávextir 5208 — — Tré og runnar 2232 — — Ætisveppir 1612 — — Skýrslan upplýsir einnig, að Hollendingar verja nú um 1240 milljónum króna á ári til rannsókna og tilrauna í garðyrkju. Framleiðendur leggja fram 10% af þessari upphæð, en ríkið leggur til 90% fjármagnsins. Bæta má hér við, að á ýmsu hefur gengið í ár fyrir hollenzkri garðyrkju er varðar sölu úr landi. Fyrir stuttu varð hreinlega að fleygja á stuttum tíma um 700 þúsund stykkjum af salati, því ekki fékkst það lágmarkssöluverð sem er í gildi á hverj- um tíma. Verð á tómötum hefur einnig verið í algjöru lágmarki um skeið, m. a. vegna mikils framboðs frá Austur-Evrópulöndunum, Búlgaríu og Rúmeníu. Þessi lönd eru farin að bjóða mjög ódýrar gróðurhúsaafurðir í aðal-markaðslöndum HoIIendinga. Síðast er vitað var, fengu hollenzkir garðyrkju- bændur um 18 kr fyrir kílóið af tómötum á upp- boðsstöðvunum, og verður það að teljast hágborið verð, m. a. ef haft er í huga, að olía til upphitunar hefur hækkað á annað hundrað prósent á tæpu ári. Eru hollenzkir grænmetisframleiðendur skiljan- lega uggandi um sinn hag og kvíðnir gagnvart framþróun gróðurhúsaframkvæmda í austurhluta Evrópu. Hollendingar hafa haft mestan veg og vanda af að kerfa þessar framkvæmdir og byggja upp, og ljá hverskonar tækniaðstoð frá upphafi, en aðeins eru nokkur ár síðan hafist var handa bæði í Búlgaríu og Rúmeníu um verksmiðjurekst- ur gróðurhúsa á sama hátt og bezt gerist í Vestur- Evrópu. Einnig á sviði blómaræktar eru Hollendingar að öðlast skeinuhætta keppinauta. Mikil útþennsla á sér stað á Ítalíu, einkum í suðurhiuta Iandsins þar sem sólríkja er mikil. Einnig í ísrael er unnið markvisst að því að auka blómarækt fyrir Evrópu- markað, og nú hafa ræktendur í Kenya hafist handa um hlómaframleiðslu til útflutnings. í flest- um tilvikum eru þar Norður-Evrópubúar að verki. Ó. V. H. RANNSÓKNIR Á GRASKÖGGLAFRAMLEIÐSLU Norsku bændasamtökin hafa mælt með því, að af rannsóknastyrk hins opinhera, í þágu búnaðarrann- sókna og tilrauna, verði varið á þessu ári 100.000 krónum (þ. e. 1,2 millj. ísl. kr.). Rannsóknirnar verði framkvæmdar við Kalnes búnaðarskóla, en þar hefur verið unnið að slíkum athöfnum að undanförnu. í bréfi til ráðuneytisins frá bændasamtökunum segir, að þrátt fyrir að það hafi sýnt sig til þessa. að graskögglar hafi reynzt of dýrt fóður og dýrara en allt annað jafngilt, megi telja réttmætt að fram- kvæma rannsóknir, sem geti vísað leiðina, er velja skal í þessum efnum, því að vera megi að í fram- tíðinni geti þessi verkunaraðferð orðið raunhæf þar eð vinnulaun hækka stöðugt en vélræn orka ekki að sama skapi. Einnig er á það bent, að með því að taka grasið snemma á vaxtarstigi þess og þurrka það sé hægt að afla meira próteins en annars og þar eð prótein virðist stöðugt hækka í verði á heimsmarkaði sé vel þess vert að öruggar rannsóknir og tilraunir hafi skorið úr um hvað vinnst við umrædda verkunaraðferð og hvernig kostnaðarliðir skiptast við framleiðslu grasköggla. Þessvegna skuli kanna hæði hin tæknilegu, fóður- fræðilegu og hagfræðilegu atriði. LANDSBYGDENS FOLK finnska bændablaðið, segir frá því um miðjan júlí s. I., að svo mikið frost hafi komið á ýmsum stöð- um í Finnlandi, jafnvel á suðlægri slóð, snemma í júlí, að kartöflugras kolféll. Til allrar lukku var korn varla farið að blómstra eða ekki, og hefur það vonandi bjargað þeirri uppskeru frá eyðileggingu. Sama heimild greinir hinsvegar frá því, að svo miklir þurrkar hafi verið í sunnanverðu Finnlandi í vor og snemmsumars, að þeir hafi háð hálmvexti kornsins og því sé auðsætt, að þar verði uppskera korns næsta takmörkuð á vorkorni. 384 f R E V I

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.