Freyr - 01.09.1971, Síða 30
og heymusk dreifist um húsin þegar teknir
eru baggar og bornir á garða eða fóður-
gang, en þegar er fyrst mokað niður og
verða svo að bera það laust í fanginu 2 til
3 ferðir fyrir hvern bagga og svo að laga
til á görðum. Auk þess þurfti ég að gefa
í það minnsta tvisvar á dag á garðana hjá
mér, meðan ég var með laust hey, og eru
húsin og garðarnir þó byggðir eftir fyrir-
lagi og teikningu frá Teiknistofu landbún-
aðarins.
Nú gæti ég hæglega gefið í einu til
tveggja daga, auk þess slæðir féð miklu
minna úr böggum en ef gefið er laust hey.
Vanalega rása ærnar mest fyrst frá jötu
og fara þá æfinlega með tuggu í kjaftinum,
hún verður minni ef þær rífa úr þéttu
bagga-lagi.
Ég gæti trúað að eftir 10—20 ár verði
allir búnir að fá sér bindivél eða í það
minnsta láti binda allt hey hjá sér. Það
er mjög vaxandi ásókn hjá mörgum að fá
þá, sem bindivél eiga, til að binda hjá sér
og sumir líka notfært sér það sem atvinnu-
pening, jafnvel til menn, er eiga allt upp
í 4 vélar, sem þeir láta ganga um og binda
hey. Ég batt töluvert hjá 3 mönnum í hitt-
iðfyrra, þeir fengu sér allir vél árið eftir
og eru mjög ánægðir með það; sumir hafa
getað sparað sér mannahald að vetrinum
fyrir bragðið.
Þeir, sem flytja þessar vélar inn, verða
að gera sér ljóst, að leiðbeininga- og við-
gerðarþjónusta verður að vera í lagi, svo
og nægar birgðir varahluta. Sá sem hefur
þetta í góðu lagi á viðskiptin vís.
378
F R E Y R