Freyr - 01.12.1983, Qupperneq 8
Kýrnar á Stekkjarflölum í Eyjafirði. (Ljósm. J. J. D.).
Hið opinbera mælir fyrir um
æ fleiri verkefni á kostnað leiðbeininga
Viðtöl við héraðsráðunautana í Eyjafirði
Búnaðarmálahús Eyfirðinga á Gleráreyrum hýsir landbúnaðarstofnanir í héraðinu.
Pegar fréttamann Freys bar þar að garði sátu þeir starfsmenn sem heima voru þá
stundina að morgunkaffi. Þarna var glatt á hjalla og góður starfsandi.
Húsakynnin á Óseyri 2 voru form-
lega tekin í notkun á aðalfundi
Búnaðarsambands Eyjafjarðar 6.
apríl 1982. Efri hæðin er eign
Búnaðarsambandsins en Kaupfé-
lag Eyfirðinga á þá neðri og þar
hefur Kaupfélagið Véladeild sína.
Á efri hæðinni eru til húsa, auk
Búnaðarsambandsins, Ræktunar-
félag Norðurlands, þar er rann-
sóknarstofa og skrifstofur ráðu-
nauta þess. Búnaðarfélag íslands
hefur hér skrifstofu fyrir
fóðurráðunaut sinn, Jón Árnason,
og Tilraunastöðin á Möðruvöllum
er þarna með skrifstofu. Þar er
einnig byggingafulltrúaembættið
fyrir Eyjafjarðarsvæðið og loks er
svo Ungmennasamband Eyja-
fjarðar þar með skrifstofu sína.
Enn er að nefna Búnaðarbóka-
safnið, sem er sérstofnun í eigu
Ræktunarfélag Norðurlands,
Búnaðarsambandsins og Tilrauna-
stofunnar. Þetta er fyrst og fremst
gott tímaritsafn, einnig er þar
mikið af ýmsum sérprentunum um
ákveðin efni og nokkuð af bókum.
Safninu er enn ekki fullraðað en
það hefur verið skráð og flokkað
til ársins 1978. Sérstakur bóka-
vörður er ekki við safnið en bóka-
safnsfræðingur hefur verið feng-
inn til þess að flokka það og skrá.
Þetta er sérfræðisafn og þangað
geta allir sem vilja aflað sér upp-
lýsinga um landbúnað komið og
sest og fengið afnot af gögnum
safnsins.
Hjá Búnaðarsambandinu starfa
fjórir héraðsráðunautar en Ævarr
Hjartarson er jafnframt fram-
kvæmdarstjóri Búnaðarsam-
bandsins. Nokkur starfsskipting er
á milli ráðunauta um sérsvið.
Auk framkvæmdarstjórnar
sinnir Ævarr aukabúgreinum,
hrossarækt, fiskirækt og loðdýra-
rækt. Guðmundur Steindórsson
hefur umsjón með nautgriparækt-
inni, Ólafur Vagnsson leiðbeinir
um sauðfjárrækt og kartöflurækt
en Guðmundur Helgi Gunnarsson
er ráðunautur í jarðrækt og fóðrun
og hann hefur umsjón með töku
bæði jarðvegssýna og heysýna og
leiðbeiningum út frá niðurstöðum
þeirra efnagreininga.
Frh. á bls. 947.
936 — FREYR