Freyr - 01.12.1983, Blaðsíða 22
Sigurgeir Þorgeirsson,
Stefán Scheving Torsteinsson og
Halldór Pálsson,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Taða, fóðurbianda og graskögglar.
Áhrif á þrif og afurðir sauðfjár.
Á síðustu árum hefur verið lögð mikil áhersla á að framleiða búfjárafurðir sem mest af
innlendu fóðri, sérstakega þó sauðfjárafurðir, og helst á heimaöfluðu fóðri, þ. e. töðu,
votri eða þurri. Síðustu áratugina jókst kjarnfóðurnotkun mjög í fóðri sauðfjár, að
nokkru sem afleiðing af hámarksafurðastefnunni.
Samkvæmt búreikningum síðasta
áratugar nam kjarnfóðurkostnað-
ur tæpum þriðjungi af breytilegum
kostnaði á kind á búreikningabú-
unum. Við núverandi skilyrði
landbúnaðar er höfuðnauðsyn að
lækka tilkostnað. Tilgangur
þeirrar tilraunar, sem hér er lýst
er að varpa ljósi á hvort og hversu
mikið hægt er að draga úr
kjarnfóðurgjöf handa sauðfé, án
þess að það komi fram í afurða-
tjóni, ef nægilegt magn af töðu er
fyrir hendi. Ennfremur hvort
graskögglar geti komið í stað fóð-
urblöndu þegar gefið er sama
magn af hvoru tveggja, en áður
var komið fram, (Stefán Sch.
Thorsteinsson og Pétur Sigtryggs-
son 1978), að hver FE í gras-
kögglum gaf jafngóða raun til
dilkakjötsframleiðslu og FE í fóð-
urblöndu.
Rannsóknarefni og aðferðir.
Tilraunin var framkvæmd á Hesti,
hófst haustið 1979 og stóð í þrjú
ár. í henni voru ár hvert 200 ær á
aldrinum þriggja til átta vetra.
Þeim var skipt í fjóra flokka, 50 í
hverjum. Við skiptingu ánna í
flokka var tekið tillit til eftirfar-
andi atriða: Aldurs, frjósemi og
meðalafurðastigs undanfarinna
ára og þunga á fæti 1. desember
við upphaf tilraunar. Ærnar voru
hafðar í sömu flokkum öll ár til-
raunarinnar, en árlega var bætt
við ám í stað þeirra sem slátrað
var eða misfórust af einhverjum
orsökum.
Skipulag tilraunarinnar og fóðr-
unaráætlun er sýnt í meðfylgjandi
töflu.
Flokkar 1 og 4 voru sérfóðraðir
allan gjafatímann, þar til fénu var
sleppt í úthaga viku af júní, en
flokkar 2 og 3 voru fóðraðir
saman fram að burði en sinn í
hvoru lagi eftir burð, þ. e. ærnar í
þessum flokkum voru aðskildar
um leið og þær báru. Bornu ánum
var gefið inni í fjóra til fimm daga
en síðan sleppt í aðskilin túnhólf,
um 3 ha að stærð hvert hólf,
einlembum og tvílembum saman.
Allt fóður var vegið í hvern flokk
fyrir sig allan gjafatímann og
sömuleiðis fóðurleifar. Nákvæmu
mati á fóðurleifum var þó ekki
komið við, eftir að ærnar komu út
vegna slæðings, vætu o. s. frv.
Heysýni voru tekin úr hverri dags-
Fóðrunaráætlun á á.
Fengieldi Viðhaldsfóðrun Vaxandi fóðrun 1. des—-10. jan. 10. jan. — 5. apr. 5. apr. — burður Fóðrun eftir burð
Fl. 1 Grunnfóður er 1,0 kg taða allan veturinn + graskögglar í sama magni og fóðurblandan í flokki 4. Taða að vild + 500g grask.
Fl. 2 Taða Að vild Taða Taða 0,65—0,7 FE Að vild Taða að vild + 500g fóðurbl.
Fl. 3 Taða Að vild Taða Taða 0,65—0,7 FE Að vild Taða Að vild
Fl. 4 Grunnfóður er 1.0 kg taða allan veturinn + fóðurbl. að 0,9 FE + fóðurbl. að 0,65-0,7 FE + fóðurbl. að 0,9 FE Taða að vild + 500gfóðurbl.
950 — FREYR