Freyr - 01.12.1983, Side 24
Hestur í Borgarfirði. (Ljósm. Sigurg. Porgeirsson).
árin var 0.56 kg í 1. fl., 0.57 kg í 2.
fl., 0.43 kg í 3. fl. og 0.49 kg í 4. fl.
Erfitt er að skýra hversvegna hey-
átið var minnst í 3. fl., einmitt
þeim flokki, sem mesta hafði þörf-
ina, enda kemur það fram á afurð-
unum. Má geta þess til, að þar
kunni að vera um bætiefnaskort,
próteinskort eða steinefnaskort að
ræða, en lystarleysi ánna í þessum
flokki var áberandi.
2. Þungi og holdafar ánna.
Meðalþungi, þungabreytingar,
holdastig og holdabreytingar öll
árin eru sýnd í töflu 3 og línuriti 1.
Ærnar voru misþungar eftir árum
við fyrstu haustvigtun, léttastar
haustið 1979, 63.3 kg, þyngstar
haustið 1980, 66.1 kg. Fyrri tvö
árin voru ærnar nær jafnar að
þunga og holdum 1. des., er til-
raunaskeiðið hófst eins og 1. októ-
ber, en 3. árið léttust þær þetta
tímabil unt 2.3 kg. Þetta ár þyngd-
ust ærnar um 2.3 kg í október en
léttust um 4.6 kg í nóvember og
lögðu samtímis af sem nam 0.36
holdastigum. Þetta haust voru því
ærnar léttastar og magrastar er
tilraunafóðrun hófst. Enginn
raunhæfur munur var á þunga eða
holdastigum milli flokka fyrr en í
janúarvigtun, eftir fengieldi. Þá
voru töðuflokkarnir þyngstir, en
ærnar í graskögglaflokknum létt-
astar. Þessi aukni þungi töðu-
flokkanna umfram hina mun þó
stafa af meiri kviðfylli, sem sést á
því, að þessir flokkar bættu minna
við holdastig sín en hinir. Frá 5.
janúar til 18. mars þyngdust ærnar
í öllum flokkum en minna í
heyflokknum en hinum. Holdastig
stóðu í stað á þessu tímabili, sem
sýnir, að ærnar hafa verið á við-
haldsfóðri. en þyngdaraukningin
orsakast af aukinni kviðfylli,
vegna þess að gefið var grófara
hey. Frá 18. mars til 1. maí þyngd-
ust ærnar í 1. fl. um aðeins 2.9 kg
en 4.5 kg í töðuflokkunum og 4.1
kg í fóðurblönduflokki, og voru
ærnar í 1. fl. marktækt léttari en í
hinum 1. maí. Hinsvegar voru
holdastig jöfn í grasköggla- og
töðuflokkunum en 0.4 stigum
hærri í fóðurblönduflokknum og
er sá munur marktækur. Þunga-
munur 1. maí á graskögglaflokki
og töðuflokkunum mun stafa af
minni kviðfylli hins fyrrnefnda. Sé
litið á einstök ár kemur í ljós, að
árið 1982 sker sig úr að því leyti,
að þá lögðu ærnar tilfinnanlega af
síðari hluta vetrar, minnst í 4.
flokki 0.21 stig, en svipað í hinum,
0.72 stig í 1. fl., 0.68 stig í 2. fl. og
0.58 stig í 3. fl. frá 2. febrúar til 1.
maí. Þetta gerðist þrátt fyrir að,
heyið væri svipað að gæðum og
áður, skv. efnagreiningum. Helsta
skýringin virðist vera mikil aflagn-
ing ánna í nóvember, og kemur
það fram í gögnunum, að því
meira sem ærnar lögðu af þá, því
meiri varð einnig aflagning þeirra
eftir 18. mars.
Þarna virðast ærnar ekki hafa
Tafla 3. Meðalþungi og holdastig ánna. Reiknað innan ára, leiðrétt fyrir fósturfjölda (0, 1, 2 eða 3 lömb), aldri
°g fangdegi.+) Vigtardagur_____________________________
Flokkur Tala 1. okt. 1. nóv. 1. des. 5. jan. 18. marz 1. maí
Þungi
1 149 64,0 64,9 63,0 63,7 a 65,6 68,5 a
2 146 65,1 65,9 63,7 66,1 bc 66,9 71,4 b
3 148 65,2 66,3 64,0 66,8 b 67,6 72,9 b
4 148 64,0 65,3 63,8 64,9 c 67,8 71,9 b
Holdastig
1 149 3,62 3,42 3,81 a 3,82 a 3,73 a
2 146 3,66 3.47 3,71 a 3,69 a 3,72 a
3 148 3.61 3,46 3,67 a 3,69 a 3,74 a
4 148 3,62 3,52 4,00 b 4,05 b 4,13 b
+ ) Mismunandi bókstafir í þessari töflu og þeim sem á eftir koma tákna raunhæfan mun (p < 0,05) milli viðkomandi flokka.
952 — FREYR