Freyr - 01.12.1983, Síða 25
ÞUNGI(kg)
HOLDASTIG
4.20 -
4.00
3.80
3.60
3.40
3.20
3.00
T---------1--------1---------1---------1--
l.OKT. 1.NðV. l.DES. 5.JAN. 1 . FEB .
]8.MAR.
1 . MAl
náð að byggja upp næringarforða
þrátt fyrir góða bötun á fengield-
inu, og hafa því þurft að ganga of
nærri sér á útmánuðum til eðli-
legrar fósturmyndunar.
3. Frjósemi.
Tafla 4 sýnir frjósemi ánna eftir
flokkum.
Meðalfrjósemi allra flokka var
1,76 lömb fædd pr. á, og hvorki
var marktækur munur á árum né
flokkum. Þannig náðist fyllilega
sambærileg frjósemi í töðuflokk-
unum, miðað við flokka 1 og 4,
sem er í fullu samræmi við niður-
stöður Stefáns Aðalsteinssonar
o. fl. (1981), þar sem borin var
saman fóðrun áa á heyi með og án
kjarnfóðurs á þremur tilraunabú-
um. Það er þó athyglisvert, að
þetta skyldi takast síðasta árið,
þrátt fyrir mikla aflagningu ánna í
nóvember, en hafa ber í huga, að
öll árin var gefið gott hey um
fengitímann, og átu töðu-ærnar til
jafns við fóðurblönduflokkinn,
mælt í FE.
Þar eð lambavanhöld voru
áþekk í öllum flokkum, var ekki
marktækur munur á fjölda lamba,
sem komu til nytja.
4. Fæðingarþungi lamba.
Tafla 5 sýnir áhrif meðferðar á
fæðingarþunga lambanna. Ekki
var um að ræða raunhæft samspil
milli flokka og ára. Einlembingar í
fl. 4 fæddust u. þ. b. 300 g. þyngri
en í hinum flokkunum, og er sá
munur marktækur (p < 0.01).
Tvílembingar fæddust léttastir í
töðuflokkunum (fl. 2 og 3), 3.30
kg að jafnaði, sem er 190 g léttara
en í graskögglaflokki og 330 g
léttara en í fóðurblönduflokki.
Útilokað er að útskýra hinn raun-
hæfa mun (p < 0.05) milli flokka 2
og 3, sem voru fóðraðir saman
fram að burði, nema sem tilviljun-
arkennda sveiflu. Raunhæfur
munur kom fram á fæðingarþunga
tvílembinga milli ára, sem endur-
speglar ástand ánna við burð hvert
ár. Þannig voru tvílembingarnir
fæddir þyngstir árið 1980, 3,62 kg,
Linurit 1. Þungi og holdastig ánna.
en 3,39 kg 1981 og 3,28 kg vorið
1982.
5. Vaxtarhraði lamba.
Tafla 6 sýnir vaxtarhraða lamba
frá fæðingu til rúnings. Einlemb-
ingar í 2. og 4. flokki uxu mark-
tækt hraðar en einlembingar í 3.
flokki (u. þ. b. 20g/dag), en ekki
var raunhæfur munur á einlemb-
ingum í 1., 2. og 4. flokki. Hvað
tvílembinga snertir var vaxtar-
Tafla 4. Áhrif meðferðar á frjósemi ánna.
Þriggja ára niðurstöður.
Lömb fædd
pr. á sem bar % % % %
Flokkur Fjöldi Meðaltal geldar einl. tvíl. þríl.
1 ................... 145 1,72 2,7 26,9 70,5 0,0
2 ................... 144 1,79 1,4 23,3 72,6 2,7
3 ................... 145 1,78 2,0 25,0 70,9 2,0
4 ................... 141 1,74 4,1 24,5 70,7 0,7
Samtals 575 1,76 2,5 24,9 71,2 1,4
FREYR — 953