Freyr - 01.12.1983, Page 26
Hrúlar á Hesti. (Ljósm. Sigurg. Þorgeirsson).
hraðinn mestur í 4. flokki, 276 g/
dag, samanborið við 255—260 g/
dag í hinum flokkunum, og er sá
munur marktækur (p < 0.01).
Þegar öll lömb eru umreiknuð í
tvílembinga er vaxtarhraðinn í 4.
flokki 22 g/dag meiri en í 3. flokki
(p < 0.01) og að jafnaði 13 g/dag
meiri en í 1. og 2. flokki (p <
0.05). Rétt er að benda á, að
vaxtarhraði einlembinga í 2.
flokki, sem fékk 500 g af fóður-
blöndu á dag eftir burðinn, var 17
g/dag (p < 0.05) meiri en í 3.
flokki, sem aldrei fékk annað en
töðu. Aftur á móti var nær enginn
munur á vaxtarhraða tvílembinga í
sömu flokkum. Þannig virðist
þessi fóðurblönduskammtur hafa
nægt sem uppbót á ónóga vetrar-
fóðrun fyrir einlembur en ekki
tvílembur.
Raunhæft samspil reyndist vera
milli árs og burðar (einl. tvíl.),
þ. e. vaxtarhraði einlembinga var
nánast hinn sami öll árin, en
marktækur munur kom fram á
tvílembingum. Þeir uxu best
sumarið 1980, 268 g/dag en 259 g/
dag 1981 og 1982. Þessi munur
sem jafnframt kom fram í fæðing-
arþunga, er glöggt dæmi um það,
hve einlembingar eru ónæmari
fyrir umhverfisáhrifum en tví-
lembingar.
Tafla 7. Vaxtarhraði lamba eftir rúning.
Öll lömb reiknuð sem tvílembing-
ar. Leiðrétt fyrir sömu þáttum og í
töflu 6.
Eftir flokkum
Flokkur Tala g/dag
1 158 238
2 161 234
3 161 231
4 166 235
Áhrif ára
Ár Tala g/dag
1980 210 233
1981 201 242
1982 235 228
Samt. 646 235
Enginn raunhæfur munur kom
fram milli flokka á vaxtarhraða
einlembinga né tvílembinga eftir
rúning, og virðist því fóðuráhrifa
gæta lítt eða ekki á þessu skeiði.
Hins vegar var vaxtarhraði lamb-
anna eftir rúning meiri sumarið
1981 heldur en 1980 eða 1982 (p <
0.05).
6. Þungi á fæti og fallþungi.
Þungi lamba á fæti við slátrun er
sýndur í töflu 8 og fallþungi þeirra
í töflu 9. Að vonum gefa þessar
töflur áþekka mynd af áhrifum
meðferðar og árs; það sem á milli
ber orsakast af mismunandi kjöt-
hlutfalli, sem tengist vænleika
lambanna og er lægst í töðuflokk-
unum.
Fallþungi einlembinga og tví-
lembinga var nrestur í flokki 4.
Miðað við flokk 1 var munurinn
200 g á einlembing og óraunhæfur
en 260 g á tvílembing og jaðraði
við 5% raunhæfni. Fallþungi tví-
lembinga í töðuflokkunum (fl. 2
og 3) var að jafnaði 470 g minni en
Tafla 5. Fæðingarþungi lamba. Reiknað innan ára, leiðrétt fyrir kyni lambs, fangdegi og aldri móður.
Einlembingar Tvílembingar Þrílembingar
Flokkur Tala Kg Raunh. Tala Kg Raunh. Tala kg Raunh.
1 40 4.36 a 208 3.49 a 0 —
2 .. 34 4.38 a 208 3.36 b 12 2.62 a
3 .. 37 4.29 a 208 3.24 c 9 3.00
4 .. 36 4.67 b 209 3.62 d 3 3.31 b
Tafla 6. Vaxtarhraði lamba fyrir rúning
Leiðrétt fyrir ári, samspili árs og burðar; aldri og kyni lambs; aldri,
einkunn og þunga móður 1. des.
Öll lömb, reiknuö
Einlembingar Tvílembingár sem tvílembingar
Flokkur Tala g/dag Raunh Tala g/dag Raunh. Tala g/dag Raunh.
1 .. 41 328 117 260 a 158 260 a
2 .. 36 335 a 125 258 a 161 262 a
3 .. 37 318 b 124 255 a 161 252 b
4 .. 41 340 a 125 276 b 166 274 c
954 — FREYR