Freyr - 01.12.1983, Page 28
hafi verið nokkru rýrari í þessum
flokki en kjarnfóðurflokkunum.
Þarna ræður að sjálfsögðu úrslit-
um verðhlutfall kjarnfóðurs og
töðu, en í þessu dæmi kostar hver
fóðureining 6.46 kr. í töðu, 11,90
kr. í graskögglum og 10.90 kr. í
fóðurblöndunni. Ljóst er, að mikil
notkun kjarnfóðurs á slíku verði
dregur úr arðsemi búrekstursins.
Syngjandi bóndi
Jóhann Már Jóhannsson bóndi í
Keflavík í Hegranesi, hefur sungið
inn á hljómplötu sem nýlega er
komin á markað og gefur hann
sjálfur plötuna út. Undirleikari er
Guðjón Pálsson, skólastjóri Tón-
listarskóla Vestur-Húnavatns-
sýslu. Á plötunni eru sextán ís-
lensk lög og eitt ítalskt við íslensk-
an texta.
„Þetta eru alþekkt og góð lög sem
allir hlýða á sem á annað borð
hlusta á íslenska söngvara", sagði
Jóhann Már í samtali við Frey.
Platan hefur hlotið mjög góðar
viðtökur og reyndar rokið út. Hún
er tekin upp í Stúdíói Bimbó á
Akureyri. Jóhann Már hefur áður
sungið inn á plötu, en það var
fjölskylduplata Jóhanns Konráðs-
sonar.
Platan heitir „Bóndinn" og er
það nafn að sögn útgefanda til að
leggja áherslu á að í sveitum
landsins er lifað menningarlífi, og
að bændur geta fleira en hirt
skepnur.
Hins vegar er skylt að benda á, að
tilraun þessi stóð aðeins í þrjú ár,
og því er ósvarað enn, hver áhrif
töðufóðrunin mundi hafa á end-
ingu ánna og æviframleiðslu
þeirra.
HEIMILDIR
Stefán Aðalsteinsson o. fl. 1981. Til-
raunir með fóðrun áa á heyi án
kjarnfóðurs. Ráðunautafundur 1981:
bls. 237.
Stefán Sch. Thorsteinsson 1975. Fóðrun
áa eftir burð. Ráðunautafundur 1975.
Stefán Sch. Thorsteinsson og Pétur Sig-
tryggsson 1978. Samanburðartilraun
með þrjár tegundir af fóðurbæti og
töðugjöf eingöngu handa ám. Ráðu-
nautafundur 1978: bls. 308.
Molar
Norrænir loðdýraræktendur kynna
atvinnuveg sinn
í fyrra skipulögðu fylgismenn
„Græna flokksins" í Vestur-Þýska-
landi mikla áróðursherferð á
hendur loðskinnaframleiðendum
til þess að vinna gegn loðdýra-
haldi. Nefndu Grænflokksmenn
þessa starfsemi sína Anti-pels-her-
ferð, eða lauslega þýtt; gegn loð-
skinnum.
Samtök grávöruframleiðenda á
Norðurlöndum vildu ekki láta við
svo búið standa, enda er mesti
loðskinnamarkaður heims í Þýska-
landi. Saga Furs of Scandinavia lét
krók koma á móti bragði og hefur
að undanförnu boðið fulltrúum
fjölmiðla að kynna sér loðdýrabú-
skap á Norðurlöndum, einkum í
Danmörku. Hafa margir og fjöl-
mennir hópar fréttamanna þegið
boðið. Einnig hafa þessir fjöl-
miðlamenn heimsótt aðalstöðvar
norrænna loðdýrabænda í Holte í
Danmörku, þar sem heitir Saga-
House. Frekari kynning er áform-
uð eftirleiðis á loðdýrabúskap og
loðskinnauppboðum í Danmörku.
956 — FfíEYfí