Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1983, Side 37

Freyr - 01.12.1983, Side 37
Hver er hlutur bóndans? Víðast hvar erlendis þykir það gott ef framleiðendur fá um 50% áí því verði sem neytendur greiða fyrir búvöru. í ýmsum löndum er þetta hlutfall enn lægra. Hér hafa bændur um langt ára- bil fengið um 70% af smásölu- verði kindakjöts, þá er miðað við óniðurgreitt smásöluverð í heilum skrokkum ósundurteknum. Smásöluverð í 1. verðflokki dilkakjöts er nú kr. 114,95 á kg. Niðurgreiðslur eru 25,06 kr. á kg., en bóndinn á að fá 96,23. Af þessu verði eru tekin sjóðagjöld, þá greiðir bóndinn flutning á lömb- unum heiman frá sér í sláturhúsið. Miðað við framangreint verð fær bóndinn 68,7% miðað við að nið- urgreiðslum sé bætt við smá- söluverðið, en það er hið raun- verulega verð á dilkakjötinu. Þetta hlutfall mundi breytast nokkuð ef skrokkurinn væri seld- ur niðurbrytjaður og eitthvað af kjötinu selt í unnum kjötvörum. Lambakótilettur eru seldar á tæp- ar kr. 156 hvert kg. Það má segja að raunverulegt verð á þeim ætti að vera kr. 181 á kg. Meðalverðið sem bændur fá fyrir dilkakjötið er því 53% af kótilettuverðinu ónið- urgreiddu í smásölu. Svínabændur eiga að fá kr. Eftir þau kynni hafa líka tekist viðskipti við sífellt fleiri bændur hér á Islandi í sambandi við útveg- un á búnaði til kanínubúa, verk- færi og jafnvel afurðasölu. Bænd- urnir fóru þessa ferð að eigin frumkvæði. Mér hefur fundist að bændur vera einhverjir traustustu og skemmtilegustu viðskiptavin- irnir. Aðalánægjan við starf mitt er að verða var við, þegar menn kunna að meta góðar vélar og tæki sem þeir hafa fengið í hendurnar", sagði Júlíus Halldórsson að lokum. . . „ 114,18 fyrir hvert kg. af svínakjöti í 1. flokki. Kaupandi greiðir flutn- ingskostnað á svínum til sláturhús- ins. Verð á 1 kg af svínakótilett- um í smásölu er nú kr. 439,60. Svínabóndinn fær því greitt 26% af því verði sem neytandinn greið- ir fyrir kótiletturnar, þegar miðað er við verð í heilum skrokkum til bóndans. Þess má geta að Sexmanna- nefnd verðleggur ekki svínakjötið, en aftur á móti ákveður hún verð á dilkakjöti til bóndans og einnig til neytenda. U.Þ.l Þaramjöl Bændur Hðfum nú fyrirliggjandi sérframleitt þaramjöl til fóöurs, pakkað í 25 kg pappírspoka. Veröiö er kr. 8,00 á kg viö verksmiðjudyr. Vinsamlegast geriö pantanir sem fyrst í síma 93-4740 eða 91-16299. Þörungavinnslan hf. Reykhólum. BÆNDUR BÍLAVERKSTÆÐI OG AÐRIR EIGENDUR LAND-ROVER BIFREIÐA ATHUGIÐ! HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG BODDÝHLUTA í LAND-ROVER EINNIG VARAHLUTI í RANGE- ROVER OG MITSUBISHI ÞEKKING OG REYNSLA TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR HEILDSALA - SMÁSALA PÓSTSENDUM SAMDÆGURS

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.