Freyr - 01.02.1984, Page 7
Ráðunautafundur 1984
Ráðunautafundur 1984 verður haldinn í
Bændahöllinni í Reykjavík dagana 6.—10.
febrúar.
Þar verða að vanda til umfjöllunar þau mál
sem efst eru á baugi varðandi landbúnað um
þessar mundir og önnur þau sem þörf þykir að
gera fullnaðarskil.
Ráðunautafundi sækja héraðsráðunautar
og ráðunautar Búnaðarfélags íslands, starfs-
menn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
og tilraunastöðva er undir hana heyra, kenn-
arar og skólastjórar bændaskólanna og Garð-
yrkjuskóla ríkisins, fulltrúar Stéttarsambands
bænda, og Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
Landgræðslu ríkisins og fleiri stofnana land-
búnaðarins, að ógleymdum nemendum Búvís-
indadeildar á Hvanneyri sem koma að kynna
sér þau verkefni sem þeir eiga brátt að starfa
að.
Fyrsta daginn verða beitarmál til umræðu.
Verður þar m. a. tekinn til meðferðar hluti af
beitarrannsóknum þeim sem staðið hafa yfir
undanfarin ár og eru umfangsmestu tilraunir
á því sviði sem gerðar hafa verið hérlendis til
þessa. Inn í þær umræður munu m. a. fléttast
vandamál sem tengjast beit.
Fyrir hádegi á þriðjudag verður eggjahvítu-
fóður og -fóðrun tekin til meðferðar. Á síðari
árum hafa rannsóknir leitt í ljós margt nýtt um
þau efni. Eftir hádegi er á dagskrá „Innlent
hráefni til fóðurgerðar“. Verður þar m. a.
rætt um loðdýrafóður og meltu og mysu-
þykkni í grasmjöli. Stjórnskipuð nefnd hefur
starfað að þessu verkefni um nokkurt skeið og
gefst öðrum nú kostur að koma skoðunum
sínum á framfæri við hana.
Að morgni næsta dags er beringspuntur til
umræðu. Grastegund sú virðist búin ýmsum
kostum og henta vel til ræktunar hér. Par mun
verða greint frá samanburði á beringspunti og
nokkrum helstu grastegundum sem eru í rækt-
un hér á landi. Seinni hluta þess dags verður
fjallað um heyverkun, en heyverkun og
hvernig til tekist með geymslu fóðurforðans
er sé burðarás sem búskapur stendur og fellur
með. Að þessu sinni verður m. a. rætt um
súgþurrkun og rúlluvothey og gerð grein fyrir
athugunum og niðurstöðum heyverkunarhóps
sem starfað hefur undanfarin ár.
Á fimmtudegi verður rætt um tölvuvæðingu
í landbúnaði fyrir hádegi, en tölvunotkun er
mál málanna á flestum sviðum í dag.
Eftir hádegi þann dag verða tekin til ýtar-
legrar umfjöllunar leiðbeiningaþjónusta og
ráðunautahald um þessar mundir og hvernig
að þeim málum skuli staðið í næstu framtíð.
Ýmislegt hefur komið í ljós á síðustu tímum,
sem getur valdið gjörbreytingu í þeim efnum.
Ferðaþjónusta bænda verður þar einnig til
umræðu.
Síðasta daginn verður heimilisgarðrækt
rædd fyrir hádegi. Feirri grein búskapar hefur
alltof lítið verið sinnt til þessa. Fyrir utan
unað, fegurð og skemmtun, sem slíkt veitir
flestum er það stunda, gefur hún drjúgt í aðra
hönd, auk hollustu og fjölbreytni til matar-
gerðar.
Fennan dag er á dagskrá þáttur um frjósemi
íslenska hrossastofnsins og sagt frá sullinum
„Taenia ovis“ sem á liðnu ári fannst í sauðfé
hér á landi.
Síðustu dagskrárliðir fundarins eru frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins og Stéttar-
sambandi bænda um framleiðslu- og sölumál
og framleiðslustjórnun. íhlutun í þeim efnum
er af mörgum talið hafa firrt þjóðina vand-
ræðum.
í fundarlok verður gjörð úttekt á störfum
fundarins og hversu að skuli staðið á næsta
ári.
Eins og undanfarin ár verða erindi af Ráðu-
nautafundi birt í Frey eftir því sem tilefni
gefast til.
Árni G. Pétursson.
FREYR — 87