Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 11

Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 11
 Á 4. mynd eru tölur er sýna þá sólarorku, sem fellur á íslenskt hafsvœði og á landið. í gróðri eru árlega bundnar 4.8x1012 kcal og O.HxlO'2 kcal í vefjum búfjár en tífalt meira orkumagn er ísjávarafurðum okkar eða 1.7xl0‘2 kcal. Til samanburðar eru tölur, er sýna það afl vatns og jarðhita, sem notað er í dag. Með 5 000 stunda árlegri nýtingu samsvarar vatnsaflið 2.5 TWH (terawattstundum) eða 2.1 xlO'2 kcal (hitaeiningum) og með svipaðri nýtingu er jarðhitinn einnig 2.5 TWH eða 2.1xl012 kcal. Sú orka, sem gróðurinn bindur árlega, er þvísvipuð að magni og öllsú vatnsorka og hitaorka samanlögð, sem notuð er árlega hér á landi í dag. Til landsins er auk þess flutt inn olía með orku, sem er svipuð að magni og íslenskur gróður bindur árlega. Á myndinni eru einnig skráðar afurðir og þjónusta, sem færist að og frá landinu. eða um 65% af heildarframleiðslu gróðurlendis kæmu búfé að not- um. Er hér um að ræða fóður með 3,14xl012 kcal í bundinni orku. Skal nú reynt að sýna hvernig þessi orka kemur búfé að notum. Nú er bústofn landsmanna um 800 000 vetrarfóðraðar kindur. Áætla má, að mjólkurkýr séu 38 500 en hross 39 000. Má um- reikna að bústofninn jafngildi 1 225 þúsund kindum hvað viðvík- ur fóðurþörf. Sé kýrin látin jafngilda 7 kindum en hrossið 4 kindum. Reiknað er með því að vetrarfóðruð kind með 1,5 lömb þurfi 7 hestburði heys í ársfóður sem svarar til 2 800 000 kcal. Er því heildarorkuþörf bústofnsins 3,4xl012 kcal, sem eru um 4xl09 kwst eða 4 TWH. (terawatt- stundir). Til þess að ala bústofn lands- manna er annars vegar notað fóð- ur af íslensku gróðurlendi með 3,14xl012 kcal orku en hins vegar aðfenginn fóðurbætir. Árlega eru notuð um 60 000 000 kg af er- lendu kjarnfóðri, og til viðbótar um 5 000 000 kg af fiskimjöli. Eru að jafnaði um 4 300 kcal í hverju kg þessa fóðurs og heildarorka þess því 0,28xl012 kcal. Alls nem- ur orka í innlendu og aðfengnu fóðri því um 3,4xl012 kcal, og veitir íslenskt gróðurlendi því yfir 90% af þeirri orku, sem er í fóðri búfjárins. Enda þótt hér sé um að ræða afurð íslensks gróðurlendis hefur þurft talsverða aðfengna orku til þess að auka uppskeruna og safna henni og varðveita fóðr- ið, svo sem við ræktun landsins, framleiðslu og dreifingu áburðar eða slátt og þurrkun heysins. Hér að framan hefur verið sýnt hvernig sólarorka binst og nýtist við framleiðslu fóðurs, en ýmsar plöntur eru einnig ræktaðar hér á landi til manneldis bæði við garð- rækt og ylrækt. Eru kartöflur stærsti liður í framleiðslu garð- ávaxta og er orkumagnið áætlað um 8xl09 kcal. Við ylræktun eru auk sólarorku einnig höfð not af jarðvarma. Er áætlað að í tómöt- um og gúrkum séu bundnar um

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.