Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 17

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 17
Oddný Björgvinsdóttir Orlofsvikur bænda 6.—12. mars og 3.—9. apríl Helgardvöl 8.—11. mars og 12.—15. apríl Góðir dreifbýlisbúar. Hvernig vœri að skella sér á orlofsviku á meðan náttúran liggur í dvala? Við bjóðum upp á tvœr orlofsvikur í mars og apríl. Það er alltaf mikið að gera í sveitinni, fólkið bundið yfir skepnuhirðingu og búrekstri. En sveitafólk verður að geta komist í smáfrí, sem það á svo sannarlega skilið að geta veitt sér. Fyrri orlofsvikan 6—12 mars býð- ur upp á svipaða dagskrá og verið hefur. Afurðatölufélga bænda verða heimsótt, boðið verður upp á skemmtikvöld, leikhúsferðir o. fl. Hún er fyrir þá sem hafa ekki komið á orlofsviku áður. Seinni vikuna 3—9 apríl, verður höfuðborgin okkar kynnt sérstak- lega eða ýmsir þættir hennar sem hafa ekki verið kynntir áður. Reykjavík, smábær fyrir nokkrum tugum ára, hefur vaxið upp í 85 þúsund manna borg, menningar- miðstöð með fjölbreyttu leikhús- lífi, listasöfnum, meira að segja óperu. En hvernig hefur borgin þróast, hver er munurinn á yngstu og elstu hverfum hennar, hver er aðaltómstundaiðja borgarbúa í dag? Þetta verður reynt að kynna á seinni orlofsvikunni. Auk þess verður boðið upp á helgardvöl með fjölbreyttni dagskrá 8—11. mars og 12—15. apríl. Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna. Höfuðborgina sína verða allir landsmenn að þekkja. Vissulega hefur hún sína galla eins og allar borgir sem hafa vaxið of fljótt og þétt upp. Yngri borgar- hverfin í Reykjavík hafa kostað mikla undirbúningsvinnu. Er skipulag þeirra í góðu samræmi við þróun þjóðfélagsins í dag og til góðs fyrir ungu kynslóðina sem vex upp í þeim? Það getur framtíð- in ein leitt í ljós, en það er áhuga- vert að skoða þau og velta spurn- ingunni fyrir sér. Athyglisvert er að gera samanburð á yngri og eldri hverfum. í skipulagi nýjustu hverfanna er gert ráð fyrir að íbúar geti haft hesta eða önnur húsdýr á lóðinni hjá sér. Þetta er alger nýjung og sýnir að mannlegi þátturinn er meira í brennidepii en verið hefur. Árlega taka sveitaheimili við miklum fjölda unglinga frá Reykjavík til sumardvalar. Þegar daginn fer að lengja og skólatím- inn að styttast þá kemur útþrá ogg hugur í margan unglinginn í bæn- um. Símaborðið hjá Búnaðarfé- lagi íslands verður allt í einu log- andi. Það er eins og allir unglingar bæjarins vilji komast út í sveit. „Ég er vanur... búinn að vera síðan ég var....“ Og mæðurnar segja: „Hann er svo stór og stæði- legur og samanrekinn, strákur- inn.“ Það hefur alltaf þótt stór þáttur í uppeldi borgarbarnsins að fá að kynnast sveitalífinu og von- andi verður það svo um ókomna framtíð. Margir foreldrar eiga bestu æskuminningar sínar frá sumardvöl í sveit og er það vel. Samvinna sveitar og borgar hefur verið og er ómetanleg, góð vin- áttutengsl hafa myndast og hver þjóðfélagshópur hjálpar öðrum. En er ekki líka nauðsynlegt fyrir dreifbýlisbúana að kynnast borg- inni og gera sér grein fyrir því andrúmslofti sem börnin þar vaxa upp í? Þeir sjá þá hversu nauðsyn- legt það er fyrr þann sem býr í þröngu samfélagi að eiga þess kost að komast út í íslenska sveit. Orlofsvikurnar eru til þess að sveitafólk alls staðar af landinu geti hist og kynnst, til að auka skilning á milli ólíkra þjóðfélags- hópa, en fyrst og fremst eru þær til skemmtunar, hvíldar og fróðleiks fyrir dreifbýlisbúana. Verið öll hjartanlega velkomin á orlofsviku. Megið þið njóta dvalarinnar í Bændahöllinni í höfuðboginni ykkar. FREYR — 97

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.