Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1984, Page 25

Freyr - 01.02.1984, Page 25
Kirkjan í Burgundo en hún er rúmlega átta alda gðmul. (Ljósm. Sigurjón V. Jónsson). ar höggmyndir og gosbrunnar auk sundlaugar, trjágróðurs og fjöl- margs annars sem gladdi augað. Næst var ekið upp að Holmen- kollen þar sem er frægur skíða- stökkpallur á veturna en fjölsóttur ferðamannastaður yfir sumar- tímann. f>að sem eftir var dagsins fengum við svo frí til að skoða okkur urn og versla í miðbænum en áttum svo að mæta á vissum tíma í bílinn aftur. Síðan var strik- ið tekið á landbúnaðarháskólann á Ási sem var næsti næturstaður. Var staðurinn skoðaður í fylgd tveggja íslenskra stúlkna, Örnu Björnsdóttur frá Hrísey og Sigrún- ar Jónasdóttur úr Reykjavík, (dóttur Jónasar Jónssonar búnað- armálastjóra). Fengum við þarna í fyrsta sinn að skoða fjárhús, og voru innréttingar svipaðar því sem hér tíðkast. Það eina sem okkur sýndist frábrugðið var hve langir dindlarnir á fénu voru miðað við það íslenska. Næsta dag var ferðinni heitið til Svíaríkis. Um hádegi fórum við yfir landamærin og stönsuðum skömmu síðar í þorpinu Grums til að teygja úr okkur. Undir kvöldið komum við til Karlstad og eftir gómsætan málsverð á fínu hóteli náttuðum við okkur á farfugla- heimili. Ekki er nú beint hægt að hrósa Svíunum fyrir þessa einu nótt sem við gistum í landinu, því að hreinlætisaðstaðan var vart mönnum bjóðandi og ókum við því í skyndi til Noregs aftur eftir stutta kynningu af landi og þjóð. Áð var í þorpinu Arvika og verslað í stórmarkaði, því að það máttu þeir eiga blessaðir Svíarnir að margt fékkst ódýrt hjá þeim. Eftir þetta var haldið yfir landa- mærin á ný og ekið beint til Ham- ar þar sem tjöldum var slegið upp í snatri á þokkalegum tjaldstað í útjaðri bæjarins. Um kvöldið brugðu margir sér niður í miðbæ að sýna sig og sjá aðra. í dögun var svo ekið til Lille- hammer þar sem Maihaugen-safn- ið var skoðað, en þar er fjöldi gamalla húsa, aðallega úr Gud- brandsdal. Fengum við leiðsögu- mann til að sýna okkur það mark- verðasta og fræddi hann hópinn mjög skipulega um þau hús sem skoðuð voru. Þau halda uppruna- legu útliti jafnt að utan sem innan og sáum við þarna margt fram- andi. í Lillehammer hittum við ís- lending, Birgi Guðsteinsson, sem búið hefur þarna í fjögur ár en þeir Trausti þekkjast frá gamalii tíð. Eftir stutta gönguferð um bæinn var lagt af stað eftir Guðbrands- dalnum en síðan ekið yfir brattan fjallgarð og komið síðla dags til Storsteigen bændaskólans í Alv- dal, sem var næsti gististaður. Skólastjórinn þar, Gunnar Lunn- an var ekki heima en einn kenn- aranna, Kjell Arne Dyscebakken, tók á móti hópnum og fórum við undir leiðsögn hans í ökuferð um nágrenni skólans. Einnig ókum við langt upp í fjallshlíðina öðrum megin í dalnum en þar eru sel frá bæjunum í Alvdal. Þar uppi hittum við Per Arnfinn Bergebakken, bónda og oddvita sveitarinnar, og fræddi hann hóp- inn um staðhætti, búskap og mannlíf í sinni sveit. Hann tjáði okkur að einungis tveir bændur í dalnum færu ennþá með búpening sinn í sel á sumrin en þarna voru áður um 60 sel. Nú orðið nota menn þau sem sumarbústaði. Um kvöldið horfðu sumir á sjónvarpið þar sem Vigdís Finn- bogadóttir kom m. a. fram og flutti Ólafi Noregskonungi ham- ingjuóskir íslensku þjóðarinnar en hann átti 80 ára afmæli þennan dag. Á sunnudagsmorgni var gengið um skólastaðinn í fylgd Kjell kennara og fór hann með hópinn í fjósið, svínabúið, hlöðurnar og verkfærageymsluna en á skól- FREYR — 105

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.