Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 27
haföar lausar í fjósinu, (lausa-
göngufjós), og er milligerði í
miðju sem skiptir því í tvo hluta.
Fóðurgangar eru við útveggi en
legubásar við milligerðið, beggja
megin.
Að þessari heimsókn lokinni
var litast um í bænum Steinkjer en
síðan haldið til Mære þar sem
starfræktur er bændaskóli. Var
staðurinn skoðaður í fylgd Inge-
brigt Sirum kennara sem lýsti
búskaparháttum og kennslufyrir-
komulagi á meðan gengið var um
peningshúsin. Fjósið var mjög
snyrtilegt þrátt fyrir það að kýrnar
eru hafðar inni allan ársins hring.
Það þótti okkur furðu sæta en
heimamenn báru við landleysi auk
þess sem tímafrekt væri að leysa
þær út daglega. Á sumrin er slegið
handa þeim kvölds og morgna og
nefnist það „grænfóðrun" á ís-
lensku. Einnig vakti athygli okkar
þarna hversu ungar kýrnar voru
enda kom fram, þegar spurt var,
að þær eru yfirleitt ekki látnar
mjólka nema í þrjú mjaltaskeið
áður en þeim er fargað. Endingin
er sem sagt ekki betri með þessari
„innilokunaraðferð“.
Áður en við yfirgáfum Mære
litum við inn í kirkjuna þar, sem
var byggð úr steini kringum alda-
mótin 1100. Er hún mjög sérstætt
hús og hefur verið feiknamikil
bygging á sínum tíma. Með
A verslunargötu í Lundamó. Á myndinni
eru Elín R. Bjarnadóttir og Gyða Lúð-
víksdóttir.
heimsókninni á Mære lauk skipu-
lögðu ferðalagi okkar og gistum
við á farfuglaheimili í Þrándheimi
síðustu nóttina.
Síðasta daginn, miðvikudaginn
6. júlí, var sólskin og yfir 20° stiga
hiti svo að það voru léttklæddir
íslendingar sem fóru í verslunar-
ferð niður í miðbæ Niðaróss, eins
og bærinn hét fyrrum. Undir
kvöld var svo haldið út á flugvöll
en vegna bilunar var ekki flogið
heim fyrr en um miðja nótt. Á
meðan beðið var eftir vélinni
Trausti Eyjólfsson fararstjóri þakkar
prestshjónunum á Börsa, þeim Torill og
Sktrni Garðarssyni fyrir höfðinglegar
móttökur (Ljósm. S.V.J.).
styttu menn sér stundir með því að
syngja, fara í gönguferð, drekka
bjór eða fá sér hænublund.
Þegar við loks komum til lands-
ins var farið að birta af degi. Að
lokinni verslun í fríhöfninni var
hópnum ekið til Loftleiða-
hótelsins þar sem leiðir skildu
eftir 15 daga samveru á er-
lendri grund. Héldu menn síðan
hver til síns heima, þreyttir og
ánægðir eftir vel heppnað skóla-
ferðalag. Heima beið daglegt
amstur, jafnt til sjávar og sveita.
MF200 og 600 - Vandaður
búnaður- hagstættverð
Enn á ný kemur MF með endurbættar vélar.
Nýju 200 og 600 línurnar hafa vakið verðskuld-
aða athygli fyrir góðan búnað og vandaðan
frágang.
Til á lager. Ýmsar stærðir frá 47 til 93 h.p. með
eða án framdrifs.
Hafið samband.
MF vélar sem staðist hafa ströngustu kröfur í
áratugi.
Kaupfélögin og
2>Aöi£a4véía/t A/
Suðurlandsbraut 32. Simi 86500.
FREYR — 107