Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 29
fjöldi smærri vatna og tjarna á
svæðinu, eins og Reynisvatn og
Rauðavatn í Reykjavík, Langa-
vatn og Seltjörn í Njarðvíkum,
Gestsstaðavatn í Krísuvík, Hval-
eyrarvatn og Urriðavatn í Hafnar-
firði, svo og tjarnir á Mosfells-
heiði.
Laxveiðin.
Heildarveiði á laxi hefur verið um
7 þúsund laxar árlega að meðaltali
á árunum 1972—1981. Það er um
11% af laxveiði á landinu öllu,
sem verður að teljast mjög hag-
stætt hlutfall, enda eru á svæðinu
tvær í hópi bestu laxveiðiáa lands-
ins: Laxá í Kjós og Elliðaár, og
hafbeitin í Kollafjarðarstöðinni
hefur lagt drjúgt af mörkum til
aukningar á laxveiði sl. 15 ár.
I laxveiðiánum hefur eingöngu
verið stunduð stangaveiði, sem
skilað hefur um 65% af heildar-
veiði svæðisins, en þriðjungur
fengist úr hafbeit. Auk þess sem
laxveiði í sjó við Viðey bætti um
hundrað löxum árlega að jafnaði
við veiðina. Sá veiðiskapur er
reyndar aflagður fyrir nokkrum
árum því að Reykjavíkurborg inn-
leysti sjávarveiðina, sbr. heimild í
laxveiðilögum. vegna Elliðaánna
á sama hátt og gert hafði verið á
sínum tíma í sambandi við laxveiði
í sjávarlögn í Grafarvogi, sem not-
uð hafði verið um áratuga skeið.
Veiði sjógengins silungs er
nokkur í ám á svæðinu. Þó er slík
veiði óveruleg miðað við lax-
veiðina.
Tröllafoss í Leirvogsá í Kjósarsýslu. Fossinn er 14 m á hœð. Myndin er tekin 14. apríl
1981 og sést að snjóskaflar eru við fossinn. (Ljósm.: Einar Hannesson).
Laxá í Kjós hjá þjóðvegi. (Ljósm.: Einar Hannesson).
Silungsveiðin.
Á svæðinu eru nokkur ágæt sil-
ungsvötn, enda hafa risið mörg
sumarhús við vötnin eða í ná-
grenni þeirra, og nálægð þeirra
við mesta þéttbýli landsins eykur
aðsókn í veiði í þeim. Silungsveiði
er því mikið stunduð í stöðu-
vötnum á Reykjanesi, í Kjósar-
sýslu og á Reykjavíkursvæðinu.
Er fyrst og fremst um stangaveiði
að ræða og veiðist bæði urriði og
bleikja. Netaveiði er nokkur og
auk þess hefur á seinni árum verið
beitt gildru- og netaveiði til að
grisja silungsstofnin vegna offjölg-
unar á fiski, eins og í Meðalfells-
vatni og Djúpavatni.
Skýrsluhald um silungsveiði
hefur því miður verið í ólestri svo
að ekki er unnt að tíunda neitt um
veiðina.
Áll.
Vitað er að áll er í ýmsum ám og
vötnum í landnámi Ingólfs og í
gjám í Grindavík. Hins vegar er
lítið um það að álaveiði sé stund-
uð. Þó er vitað að menn hafa bæði
fyrr og síðar veitt í smáum stíl ál í
gildrur eða með öðrum hætti.
Fiskræktin.
Fjölþætt fiskræktarstarf hefur far-
ið fram á svæðinu með sleppingu
lax- og silungsseiða af ýmsum
stærðum í árnar og gönguseiða í
hafbeit, eins og skýrt hefur verið
frá hér að framan, fiskvegagerð í
ám, byggingu vatnsmiðlunarstífla,
ýmiss konar umbóta sem hafa ver-
ið gerðar á árfarvegum, starf-
FREYR — 109