Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 31

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 31
Veidimannahús við Elliðaár, í eigu borgarinnar. sölu á markaði, en stöðin notar m. a. heitan jarðsjó sem dælt er upp, Pólarlax hf. í Sraumsvík, sem hefur klakið út laxahrognum og alið upp seiði allt upp í göngust- ærð og vinnur að hafbeit á laxi, Klakstöðin við Myrkurtjörn í Mosfellssveit og Laxeldisstöð Stangaveiðifélags Reykjavíkur að Skógarnesi í Mosfellssveit, sem klekur út hrognum og elur laxa- seiðin upp til að sleppa þeim í ár og vötn, sem félagið hefur á leigu. Til viðbótar fyrri talningu eldis- stöðva mætti nefna ýmsa aðila sem hafa verið með klak og lítils- háttar eldi á laxi eða silungi í skamman tíma í bílskúrum eða kjöllurum húsa í Reykjavík og nágrenni. Auk þess skal rifjað upp klak- og eldisstarf, sem stundað var um skeið en síðan hætt. Pann- ig var eldisstöð í Hafnarfirði, sem fyrr var nefnd lauslega, sem var með regnbogasilung í eldi og síðar laxaseiði. Önnur minni stöð rétt við Golfskálann var með eldi á laxaseiðum og sú þriðja var í landi Artúns á Kjalarnesi og starfaði stuttan tíma. Laxeldi í sjó. Fiskifélag íslands var með tilraun- ir í laxeldi í sjó í smáum stíl fyrir tæplega 10 árum, en þær hófust í Hvalfirði og þeim lauk í Höfnum. Óhapp olli tapi á laxi úr kví, sem notuð var við tilraunir þessar. Til- raunir voru gerðar í Laxeldisstöð ríkisins með fóðrun laxaseiða í netkví, sem komið var fyrir á sjótjörn í Kollafirði, í þeim til- gangi fyrst og fremst að kanna seltuþol laxaseiða úr eldisstöð- inni. Mikilvægar upplýsingar feng- ust þannig í sambandi við eldi seiðanna, er tryggði góð sjó- gönguhæf laxaseiði. Sjóeldi hf. í Ósabotnum í Höfnum var um tíma með netkvíar í sjó og fóðraði lax, sem slátrað var og seldur á mark- að. Þessu starfi mun haldið áfram. Þá munu einstaklingar hafa verið með tilraunir með kvíaeldi í Skóg- tjörn á Álftanesi, en þær stóðu skamma hríð. Hafbeit á laxi. Með stofnun og starfi Kollafjarð- arstöðvarinnar hófst hafbeit á laxi hér á landi. Rúmlega 33 þúsund laxar úr hafi hafa þegar gengið inn í stöðina í Kollafirði. Ennfremur er þess að geta um laxahafbeit, að sumarið 1982 fengust hjá Pólarlaxi hf. tæplega 2 þúsund laxar, en fyrstu gönguseiðum af laxi hafði verið sleppt við Straumsvík 1981, sem skiluðu sér sem fullorðnir laxar sumarið 1982, eins og fyrr er frá skýrt. Þá er þess einnig að geta, að á vegum Fjárfestingafé- lags íslands, hófst hafbeitartilraun í Vogum á Vatnsleysuströnd 1982 þegar þar var sleppt úr aðlögunar- tjörn 20 þúsund gönguseiðum af laxi. Veiðifélögin. Sex veiðifélög með 58 jarðir innan sinna vélbanda eru starfandi í Reykjavík og Kjósarsýslu. Öl! ná félögin til laxveiðiáa nema eitt, sem tekur til vatna svæðis Elliða- vatns. HELSTU HEIMILDIR: Orkustofnun, Vatnamælingar Veiðimálastofnun, birt og óbirt efni. FREYR — 111

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.