Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 32

Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 32
Þórarinn Lárusson Ræktunarfélagi Norðurlands Afurðageta upp á punt Seint verða framleiðsluvandamál landbúnaðarins leyst svo að öllam líki, og allra síst í þessum stutta viðaukapistli til Ketils Hannessonar við grein hans í 1. tbl. Freys, 1984 þar sem hann svarar athugasemdum undirritaðs í 24. tbl. 1983. Ég þakka hér með svör Ketils. Margt má um þessa grein hans segja og kannski ekki síst það, sem hann lætur ósvarað, sem á vissan hátt eru þó bestu svörin. Gott dæmi um töframátt þagnar- innar. í innleggi þessu verður að mestu látið nægja að ræða lítil- lega, út frá niðurstöðum búreikn- inga, þann stóra þátt, sem afurða- semi búfjárins getur haft á tekju- möguleika bænda, og hve ráðandi það atriði er í hinum mikla og, að því er virðist, vaxandi tekjumun milli búa. Fastur liður í uppgjöri búreikn- inga í áranna rás er að sýna fram á áhrif afurðasemi á framlegð á grip. Annars vegar eru kúabú flokkuð í sjö flokka eftir nythæð og sauð- fjárbú í jafnmarga flokka eftir frjósemi áa, sem jafnframt er mælikvarði á kjöt eftir á. Hér verður ekki farið náið út í að skilgreina hugtök en framlegð fæst með því að draga breytilegan kostnað frá heildarframleiðslu- tekjum. Fjölskyldutekjur, þ. e. laun fjölskyldu og vextir af eigin fé, fást síðan þegar fastur kostnað- ur er dreginn frá framlegð. Fastur kostnaður er óháður af- urðasemi gripa og tiltölulega lítið háður fjölda þeirra. Af þessu leiðir að í stórum dráttum er hægt að fá fram fjölskyldutekjur í hverjum hinna sjö afurðafíokka með því að draga frá sömu upp- hæðina, sem svarar til fasts kostn- aðar, frá tilsvarandi framlegð. Ef litið er á hlutdeild fasts kosnaðar af framlegð meðalbúreikningabú- anna á árabilinu 1972—1982 sveiflast það allnokkuð inilli ára og búgreina. Að öðru jöfnu má segja að þetta valdi mismun á meðalfjölskyldutekjum á milli af- urðalægstu búanna, (flokkur nr. 1) og hinna afurðahæstu, (flokkur nr. 7), frá því að vera tvö- til fjórfaldur á sauðfjárbúum, en þrefaldur til fimmfaldur á kúabú- um, afurðahæsta flokknum (nr. 7) í vil. Af ástæðum sem ekki verða raktar hér, virðist fastur kostnað- ur vera hærra hlutfall af framlegð hin síðari ár, einkum árin 1981 og 1982. Þannig er hlutdeild fasts kostnaðar á kúabúum árið 1982 um 55% af framlegð á meðalbú- inu en algengt var að þessi hlut- deild væri 35—40% á árabilinu 1972—80. Þar sem ástæðulaust virðist að vænta mikilla breytinga í þessu Áhrif medalnytar á framlegö á árskú Súlurit úrtötlu5.6 Kr. 32000 30000 HLUT- '28000 rfíLLSL. -26000 FJ0LSK. 24000 22000 2.749 2.750- 3.000- 3.250- 3.500- 3.750- 4.000 oglægri 2.999 3.249 3.499 3.749 3.999 og hærri Medalnyt i litrum 112 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.