Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1984, Side 35

Freyr - 01.02.1984, Side 35
Erlendur Jóhannsson nautgriparæktarráðunautur Héraðssýningar á kúm á Suðurlandi árið 1983 Sumarið 1983 voru haldnar kúasýningar á Suðurlandi. Pœr eru haldnar fjórða hvert ár í hverjum landsfjórðungi. Einungis eru dœmdar og skoðaðar kýr hjá bœndum sem taka þátt í afurðaskýrsluhaldi á vegum nautgriparœktarfélaganna. Nú eru 29 slík félög starfandi á Suðurlandi. Afurðamestu kýrnar eru stigaðar eftir dómstiga Búnaðarfélags íslands þar sem tekið er tillit til mjaltalags kúnna og skapgerðar auk ytra útlits. Kúa- sýningar með þessu móti hafa verið haldnar frá árinu 1951. Dæmdar voru nú 936 kýr í eign 229 bænda og hlutu 710 I. verð- laun. Greinilegt er að mikið hefur áunnist í að bæta byggingarlag kúnna á síðustu árum og þá sér- staklega júgurgerð og mjaltalag en á þau atriði hefur verið lögð mest áhersla. Samkvæmt búfjárræktarlögum er búnaðarsamböndum og nautgriparæktarsamböndum heimilt, að lokinni sveitarsýningu, að halda héraðssýningu á þeim kúm sem hæstu viðurkenningu hlutu. Mikill áhugi var á því hjá stjórnum nautgriparæktarsamb- andanna á Suðurlandi að halda héraðssýningar á kúm nú í haust. Þar sem ljóst var að ekki væri unnt að safna kúm saman til sýninga- halds m. a. vegna takmarkana á flutningi gripa á svæðinu af hálfu Sauðfjárveikivarna, var þess farið á leit við stjórn Búnaðarfélags íslands að fundir þar sem dómar væru birtir og sýndar litskyggnur af bestu kúnum, teldust fullgild héraðssýning á kúm. Féllst hún á að gerð yrði tilraun með slíkt sýningarform enda hafa héraðs- sýningar á kúm ekki verið haldnar urn árabil, þrátt fyrir áhuga fyrir að koma þeim á. A héraðssýningu hefur hvert búnaðarfélag rétt til að sýna eina kú fyrir hverjar 100 kýr, sem skýrslum er skilað um, en þó hefur hvert félag rétt til að sýna tvær kýr hið fæsta. Þrenn verðlaun eru veitt, I. verðlaun A, B og C og auk þess sérstök verðlaun fyrir bestu kúna. Héraðssýningar á kúm á Suður- landi voru svo haldnar 17. og 18. nóv. síðastliðinn. Flutt voru erindi um kúadóma, lýst dómum, og sýndar voru myndir af bestu kún- um og verðlaun afhent. Þá voru einnig afhentir áletraðir verðlaunapeningar, sem Mjólkur- bú Flóamanna hafði gefið, eigend- um bestu kúnna í hverju félagi á sveitarsýningum í sumar. Fyrri daginn var sýning fyrir svæði nautgriparæktarsambands Rangárvalla- og Vestur-Skafta- fellsýslu og fundur haldinn í fél- agsheimili Vestur-Eyfellinga. 24 kýr voru valdar á sýninguna. Af þeim hlutu þrjár I. verðlaun A, tvær 1. verðlaun B og tvær 1. verðlaun C. Þær voru: Besta kýrin á sýningunni var valin Klukka 82. Hún er dóttir Blika 69001 sem er margreyndur kyn- bótagripur og skipta dætur hans hundruðum á Suðurlandi. I árslok 1982 hafði Klukka mjólkað að meðaltali í 5,3 ár 6136 kg með 3,96% fitu. Þá hlaut eigandi Klukku, Guðlaugur Jónsson, veg- legan bikar sem Kaupfélag Rang- æinga hafði gefið sem verðlaun fyrir bestu kúna. Nautastöð Bún- aðarfélags íslands hefur keypt einn son Klukku og er hann nú á uppeldisstöðinni í Þorleifskoti. Síðari daginn var svo sýning í Arnessýslu og var fundur haldinn Verðl. Kýrin: Faðir: I A. Klukka 82 Bliki 69001 I A. Drottning 46 Tígull 86810 I A. Svana 73 Svanur 86823 I B. Reyðir 125 Laufi 70009 1 B. Rín 139 Toppur 71019 I C. Ljóma 137 Már 72003 I C. Síða 39 Már 72003 Eigandi: Guðlaugur Jónsson, Voðmúlastöðum, A-Landeyjum. Eggert Pálsson. Kirkjulæk, Fljótshlíð. Gróa Kristjánsdóttir, Hólmi, A-Landeyjum. Jón og Gunnar Sigurðssynir, Eyvindarh. A-Eyjafjöllum Sigmar R. Ólafss. Miðhjáleigu, A-Landeyjum. Guðmunda Tyrfingsd., Lækjartúni, Ásahreppi. Gróa Kristjánsd., Hólmi, A-Landeyjum. FREYR — 115

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.