Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 10

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 10
marksskinngæði. Það var farið heldur yfir markið haustið 1984 vegna þess að þetta var eina búið sem var með silfurrefi. Skapgerð dýranna skiptir miklu máli, því læður sem eru órólegar og tauga- strekktar eru verri mæður og svo smita þær út frá sér og gera næstu dýr taugaveikluð. Það er líka óþægilegt ef dýrin eru mjög grimm. Þórunn Halldóra. Ég sá í kvöld úti í refaskála lítinn yrðling, sem trítlaði um eins og taminn hvolpur og var gæfur. Mér var sagt að hann hafi verið heima- gangur hérna. Hvernig stóð á því? — Hún varð útundan, um það bil sem ég byrjaði að gefa hvolpunum og þegar þeir fóru að fara út úr kassanum hjá læðunni. Læðan átti fimm hvolpa og þessi litla læða var útundan. Það var einn daginn þeg- ar ég kom í húsið, þá lá hún úti í búrinu. Hafði líklega legið þar alla nóttina því hún var alveg ísköld og var að ég hélt dauð. Ég kunni ekki við annað en reyna að gera eitthvað fyrir hana, svo ég stakk henni inn undir peysuna og hafði hana þar meðan ég gaf og fór svo með hana heim. Þá fór hún að reyna að skríða um en hún var allt of máttfárin til að geta lapið svo við sprautuðum ofan í hana mjólk. Hún braggaðist og fékk nafnið Þórunn Halldóra, kölluð Tóta. Hún var hérna heima í tæpar sex vikur. Ég er nýfarin með hana út í refaskála, hún var farin að verða dálítið fyrirferðarmikil í eld- húsinu. Mér sýndist henni leiðast þarna útí í refahúsinu. Ja, hún vill a. m. k. láta tala við sig. Hvaðan fáið þið fóðrið? Það kemur frá Sauðárkróki með tankbíl þrisvar í viku núna. Hins vegar þá lagaði ég sjálfur fóðrið í fyrravetur, gerði það fram í miðjan mái. Hefur þú fóðurtank? Við höfum í refahúsinu sex hundruð lítra fóðurkar sem fóðr- Jón og Tóla. Hún er kát og mannelsk. inu er dælt í úr tankbílnum. Við erum ekki komnir með síló ennþá, en það er náttúrulega á óskalista. A hvaða fleiri bæjum eru loð- dýrabú hér í sýslunni? Það eru blárefabú á Þórorms- tungu og Gilá hérna í Vatnsdaln- um og á Skriðulandi í Langadal, Auðkúlu í Svínavatnshreppi og á Hróarsstöðum á Skaga. Loðdýraræktin er vænleg atvinnugrein Ertu bjartsýnn á framtíð loðdýra- ræktar hér á landi? Já það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn, ef ég væri svart- sýnn þá væri af og frá að vera að starfa við þetta. Ef ég heldi ekki að ég gæti lifað á loðdýrarækt þá væri þetta þýðingarlaust. Miðað við núverandi skinnaverð er ég alls ekkert svartsýnn, það kemur sjálfsagt til með að lækka eitthvað aftur en við slíkum sveiflum má alltaf búast á vöru sem seld er á heimsmarkaði. Miðað við núver- andi verð á silfurrefaskinnum er hægt að hafa ágætis afkomu. Hvað þarftu að hafa margar silfurrefalæður til þess að hafa góða afkomu fyrir fjölskyldu? Ég geri mér tæplega fulla grein fyrir því ennþá, en það þyrfti eitthvað á annað hundrað læður til þess, miðað við núverandi verðlag. J.J.D. AUGLYSING Bændur! Framleiðsluráð landbúnaöarins vekur athygli bænda á að verði á dilkagærum í verðlagsgrundvelli frá 17. september sl. var breytt 10. október og var þá hækkað um 10%. Þau haustverð gæra sem áttu að gilda í uppgjöri við bændur 15. desember voru sem hér segir: A. flokkur ... kr. 69,16 kg B. flokkur ... kr. 47,13 kg C. flokkur ... kr. 42,94 kg Nauðsynlegt er að bændur fylgist með hvaða verð hefur verið notað í uppgjöri á gæruverðinu. FRAMLEIÐSLURÁÐ LANDBÚNAÐARINS 290 Freyr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.