Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 34
Loðskinnaverð
ræðst af mörgum þáttum
Rætt við Skúla Skúlason framkvæmdastjóra.
Skúli Skúlason er framkvœmdastjóri Kjörbœjar hf. í Kópavogi og umboðsmaður
Hudson Bay á íslandi. Hann sat í fyrstu stjórn Sambands íslenskra loðdýrarœktenda.
Hann er þaulkunnugur markaðssviði grávöru og hefur átt mikinn þátt í að koma íslensk-
um loðskinnum á markað. Freyr átti eftirfarandi viðtal við Skúla:
— Þetta byrjaði árið 1969 þegar
samþykkt voru ný lög um loðdýra-
rækt. Höfðu þá um skeið orðið
talsverðar umræður um loðdýra-
rækt og þótti ljóst að ekki væri
hægt að útrýma mink úr íslenskri
náttúru.
Hófu þá nokkur minkabú rekst-
ur árið 1970 eftir nýju lögunum og
eitt bú, Böggvisstaðabúið, bættist
við árið 1971. Reksturinn gekk
ekki eins vel og menn höfðu gert
sér vonir um og öll búin nema þrjú
heltust úr lestinni, en þau starfa
enn í dag.
Orsakir þessa voru einkum
þrjár: Óhagstæður markaður,
plasmacytose-veiki í minkunum
og tæknilegir vankantar.
Fjárskortur var viðvarandi hjá
búunum, en hann stafaði af því að
þau vörðu fóðurpeningunum í
nýja skála. Árangurinn af lélegu
fóðri voru lítil og léleg skinn og
þar af leiðandi litlar tekjur. Varð
af þessu vítahringur á þessum
árum.
Ef við víkjum að hinni félags-
legu uppbyggingu þá var Samband
íslenskra loðdýraræktenda stofnað
árið 1970 og formaður kosinn Ás-
berg Sigurðsson borgardómari.
Hann gengdi því starfi næstu tíu
árin þar til Haukur Halldórsson
tók við formennsku.
Áratugurinn 1970—1980
Rétt er að víkja að þætti Búnaðar-
félags íslands á þesum tíma. Það
réð fljótlega til sín góðan ráðunaut
í loðdýrarækt, Sigurjón Bláfeld
Jónsson, sem hefur verið duglegur
við að hjálpa okkur fram á þennan
dag. Halldór Pálsson var líka dug-
legur og hjálplegur við að fá hing-
að erlenda sérfræðinga okkur til
halds og trausts.
Varla er hægt að skiljast svo við
þann áratug að minnast ekki á
sölumálin. Fyrstu skinnin, sem
fóru á markað voru af svartmink
frá Lykkjubúinu og voru send til
Hudson Bay árið 1970.
Dýrin voru fengin frá Sandefar-
men í Noregi. Loðdýr hf. lét súta
hluta af framleiðslunni og seldi
töluvert í verslanir hér í Reykjavík
og í flughöfnina á Keflavíkurflug-
velli.
Hudson Bay hefur selt geysi-
mikið fyrir okkur fram á þennan
Hudson Bay fyrirtœkið selur loðflíkur undir vörumerkinu London Label.
314 Freyr