Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 15

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 15
r I loðdýrarækt þurfa menn að vinna saman Rætt við Hauk Halldórsson bónda í Sveinbjamargerði, formann SÍL Fyrst bað ég Hauk að segja okkur frá Sambandi íslenskra loðdýrabænda, og aðdrag- anda að stofnun þess. Eins og mörgum er kunnugt var minkarækt bönnuð hér á landi um 1950 og ekki heimiluð fyrr en 20 árum seinna þ.e.a.s. í lok ársins 1969. Þá hafði nokkrum sinnum verið flutt tillaga á Alþingi að leyfa minkarækt aftur. Mönnum kom það spánskt fyrir sjónir að einmitt hér á landi, þar sem mikið hráefni var til til loðdýraræktar, skyldi loðdýrarækt vera bönnuð — og það á sama tíma og hér var villiminkur fyrir í landinu. Við horfðum upp á það að Finnar, Norðmenn og Danir keyptu hér fiskúrgang til loðdýraeldis. Það voru áreiðanlega margir á Alþingi og víðar sem voru andvígir því að loðdýraræktin yrði heim- iluð aftur. Vegna einhverskonar vantrúar á henni. Það virtist vera að bænd- ur almennt og bændaforustan væri heldur andvíg henni og legðist á móti þessu. Kannski vegna þess að áhugi fyrir að leyfa loðdýra- rækt að nýju á íslandi kom frá öðrum en bændum. Það voru yfir- leitt menn úr öðrum atvinnugrein- um sem óskuðu eftir að endur- vekja loðdýrarækt hér. Hvenær kynntist þú loðdýrarækt ? Það var 1966—1967, en þá var ég í Danmörku til þess að afla mér þekkingar á loðdýrarækt, og fyrir utan að vinna við minkaeldi var ég nokkuð við hirðingu á chinchilla og loðkanínum (Angóra), enda bjóst ég við að loðdýrarækt yrði Haukur Halldórsson. (Ljósm. Freyr, J. J. D.j. Freyr 295

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.