Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 22

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 22
Loðdýrarækt er vaxandi í Svarfaðardal Stærsta loðdýrabúið stækkar um helming Porsteinn Aðalsteinsson. (Ljósm. Freyr, J. J. D.) Nú eru fimm loðdýrabú í Svarfað- ardal. Böggvisstaðabúið er elst en það var stofnað árið 1970. Önnur bú eru Dalalæða á Dýrholti í Sökkulandi, Skeiðsbúið, sem tók til starfa nú fyrir sl. jól, loðdýra- búið í Ytra Garðshorni og búið á Þverá í Skíðadal. Loðdýrabú Þorsteins Aðal- steinssonar á Böggvisstöðum er stærsta loðdýrabú á landinu og það er enn að færa út kvíarnar. Þorsteinn er að reisa risaskála fyrir refarækt í Ytra Holti, um tvo kílómetra framan við Dalvík. Fréttamaður Freys heimsótti Þorstein Aðalsteinsson og bað hann að segja frá reynslu sinni sem loðdýrabóndi. Vorum kallaðir ævintýramenn. Það voru átta bú, sem byrjuðu árið 1970, og þetta gekk mjög erfiðlega í byrjun hjá öllum. Það hafði enginn trú á þessu nema við og við vorum kallaðir ævintýra- menn. Fyrirgreiðsla var lítil og léleg. Þetta voru dýrar byggingar og stofnkostnaður mikill. Við vorum dreifðir um landið og þurftum að vera hver með sína fóðurstöð og skinnaverkun, og jafnvel með inn- flutning á efni sjálfir. Lán komu seint og illa í bullandi verðbólgu. Þorsteinn Aðalsteinsson ætlar að flytja refaræktina frá Böggvis- stöðum í Ytra-Holt. Loðdýrarœkt er vaxandi búgrein í Svarfaðardal og lœtur nœrri að afurðir frá loðdýrabúum þar nemi jafnmiklu að verðmceti og afurðir af nautgripum og sauðfé í dalnum. 302 Freyr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.