Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 35

Freyr - 15.04.1986, Blaðsíða 35
Skúli Skúlason. Um mitt sumar 1973 undirrituð- um við í stjórn SÍL, en ég var þá ritari hennar, samkomulag við Norges peldyravlslag a/1 um tæknileg mál og sölumál. Nokkur bú sendu þangað skinn árin 1974 og 1975 og síðar var sent þangað eitthvað af refaskinnum 1980— 1981. Einnig hafa verið reynd við- skipti við IFA (International Fur Association) í Kaupmannahöfn. Hefur þeim verið sent nokkuð af skinnum við og við, en ekki neitt viðvarandi. Arið 1981 var undirritaður sam- starfs- og sölusamningur við Dansk Pels Auktioner í Kaup- mannahöfn. Hefur það fyrirtæki selt talsvert fyrir íslenska loðdýra- bændur síðan. Verðsveiflur á loðskinnum Hvað viltu segja um verðsveiflur þær sem eru á loðskiimamarkaði? Síðasti áratugur var okkur óhag- stæður. Pó komu góð ár inni á milli með gott verð, sem nægði til að koma búum á réttan kjöl. Verðsveiflur eru tíðari á refa- skinnum en á minkaskinnum. Ástæðan er að minkurinn hefur meðal hárlengd, refurinn er lang- hærður, lambskinn (Karakúl, Bukhara, Suakar) og selskinn eru stutthærð og sveiflan er á milli þessara tveggja póla, stutthærðra og langhærðra skinna. Minka- skinn lenda því helmingi oftar í sveiflunni heldur en hin skinnin. Síðasta lægð eða lágmarksverð á refaskinnum var fyrir tveimur árum. Þar áður árið 1979 og nú er sú þriðja. Svo hækkar verðið upp úr öllu valdi, stundum tvöfaldast það. Staðan á markaðinum er nú þannig að Vesturlönd og Austur- lönd fjær geta tekið við um 30 milljónum minkaskinna, Sovét- blokkin um 7 milljónum, en fram- leidd eru um 44 milljón skinn, ef allt er tekið með. Ganga þá um 7 milljónir minkaskúuia af? Já, í haust eða var voru enn óseld allt að 5 milljónum minkaskinna þegar vetrarvertíðin byrjaði. Þó að ekki sé offramboð á blá- refa- og skuggarefaskinnum, þá verkar offramboðið á minka- skinnum þannig að verð lækkar á refaskinnum. Konur kaupa frekar minkapels en refakápu að öðru jöfnu. Ég held þrátt fyrir allt að ekki sé ástæða til svartsýni og það eigi að halda áfram uppbyggingu hér af fullum krafti. Mörgum þótti gott verð á refa- skinnum upp úr miðjum síðasta áratug. Þá fengust t.d. 70 sterl- ingspund fyrir skinn af refaaf- brigðinu pólsk sírena. Það er um 4300 kr. á núverandi gengi. Þeir greiddu götu loðdýraræktar. Ég vil minnast á nokkra menn sem voru mjög hjálplegir við að koma refarækt á fót á ný hér á landi. Þar má nefna Englendinginn Cyril Fullaway, Sigurjón Bláfeld, Skotann Blake Mundell, Stein- grím Hermannsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, Hákon Sig- urgrímsson þá aðstoðarmann hans og Hauk Jörundarson skrifstofu- stjóra. Þessir menn stuðluðu allir að framgangi refaræktarinnar hér. Síðast en ekki síst er svo vert að geta þeirra fjögurra loðdýrabúa nyrðra sem tóku þátt í tilraun þeirri sem hófst fyrir 6—7 árum til að endurreisa refaræktina. Ég var hálfhræddur um að fyrsta gotið árið 1980 mundi misfarast hjá refnum eins og hjá minknum ára- tug fyrr. Sumarið 1980 voru margir áhugasamir um að stofna ný refa- bú. Sú þróun hefur haldið stans- laust áfram síðan hvort sem hyggi- legt hefði verið að láta þessi 4 bú sem hófu refarækt halda áfram ein sér og sjá hverju fram yndi, eins og upphaflega var ætlunin. Félagsstarf og þjónusta Sam- bands íslenskra loðdýraræktenda hefur gengið mjög vel. SÍL hefur í þjónustu sinni starfsfólk sem fylgir málum vel eftir. Freyr 315

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.