Freyr - 01.08.1986, Page 25
Uppskera Uppskera
1983 1984
Tafla 1. tonn/1000m2 hlutfall tonn/lOOOm2 hlutfall
Viðmiðun.............................. 1,98 ■ 100 1,88 100
2kgOsmocote .......................... 1,96 99 2,01 107
4kgOsmocote .......................... 2,12 107 1,82 97
ókgOsmocote .......................... 2,17 110 1,82 97
8kgOsmocote .......................... 1,91 96 1.58 84
2kgNutricote ......................... 2,18 110 1,97 105
4kgNutricote ....................... 2,04 103 2,20 117
ókgNutricote ......................... 2,34 118 2,38 127
8kgNutricote ......................... 2,11 107 2,18 116
raun og hámarksuppskera fæst
bæði árin með notkun 6 kg í hvern
rúmmetra.
Þess má geta að sænskt fyrirtæki
sem framleiðir torfmold fyrir upp-
eldi, „Svenska Torv, Kronmull“
framleiðir torf, íblandað Nutri-
cote. Talsverð reynsla er komin á
þessi efni og þau hafa m. a. verið
reynd við eftirfarandi ræktun.
Tómstundaræktun:
Þar hefir notkun verið nokkur og
svo að sjá að árangur hafi verið
góður og áhrif langvinn þótt úr-
koma hafi á stundum verið mikil.
Matjurtarrækt:
Þar kemur bæði til greina að nota
þeirra áburð við uppeldi, eða
dreifa áburði samhliða plöntun.
Ef notaðar eru plöntunarvélar eru
þær búnar sérstökum dreifara sem
fellir áburð niður samhliða plönt-
un. Fer þá áburður í rás samhliða
plöntunum.
Ræktun matjurta í gróðurhúsum:
Á þessu sviði hefir notkun einkum
beinst að salatræktun og er svo að
sjá að þessar áburðartegundir
henti þar einkar vel.
Pottaplöntur:
Þar er notkun þessara efna einkar
hentug, bæði sökum þess að hægt
er að fækka gjöfum í ræktun veru-
lega og þess að vænta að plöntur
standi Setur hjá kaupanda og
minni hætta á útskolun og næring-
arskorti um alllangt skeið.
Sumarblóm og fjölærar plöntur:
Þessar áburðartegundir hafa verið
notaðar í verulegum mæli við
plöntuuppeldi og með næsta góð-
um árangri. Hætta á of miklum
grunnáburði er miklu minni en
með hefðbundnum áburði og
plöntur hafa nokkurn forða á
endanlegum vaxtarstað.
Trjáplöntuuppeldi:
Langmest magn þessara áburðar-
efna er notað á þessu sviði, ekki
síst þegar plöntur eru ræktaðar í
allstórum pottum, en sú aðferð
ryður sér æ meir til rúms erlendis.
Hefir árangur yfirleitt verið
mjög góður, og kemur ekki síst til
góða ef veðurfar er úrkomusamt
og útskolun venjulegra tilbúinna
áburðarefna er mikil, en hér
leysast efnin upp smám saman og
koma plöntum þá fremur að
gagni.
Grasfletir:
Við sáningu eða þakningu gras-
flata koma þessi efni sterklega til
greina.
Ef sáð er snemma er t. d. Nutr-
icote (140 daga) mjög athugandi.
Beð með trjám og runnum:
Þar hefir notkun þessara efna
reynst mjög vel. Það fer eftir því
hvaða tegundir eru notaðar og
hvernig ræktun er háttað, hvaða
gerð áburðar er notuð. Svipuðu
máli skiptir um aldin og berja-
rækt.
Þetta yfirlit er engan veginn
tæmandi en gefur vonandi hug-
mynd um hvað er á ferð og hverjir
eru kostir þessara efna umfram
hefðbundin efni.
Freyr 617