Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1986, Síða 27

Freyr - 01.08.1986, Síða 27
Blárefalœða sem var pöruð en hefur ekki bletti á legvegg. Læðan hefur annað hvort ekki frjóvgast (ófrjór högni?) eða hefur misst fóstrin á fyrstu 16 meðgöngu- dögunum. sömu reglum með talningu og út- reikninga hjá báðum dýrateg- undum. Hvað minkunum viðkemur má nefna að síðustu 23 daga með- göngutímans mynda fóstrin greini- lega bletti en þeir sjást þó aðeins í fáar vikur eftir fæðingu eða áætl- aðan fæðingartíma. Þess vegna er ekki unnt að greina bletti hjá mink eftir feldun að hausti. Rann- sóknir á fósturdauða hjá minkum verður því að framkvæma í maí og snemma í júní. Niðurstöður þessara rannsókna hafa ekki verið metnar tölfræði- lega heldur eingöngu reiknuð ein- föld meðaltöl. Við nákvæmari rannsóknir síðar meir verður að beita tölfræðilegum uppgjörsað- ferðum. Framkvæmd rannsóknariimar. í október 1982 var haft samband við hóp refa- og finnracconbænda svo hægt væri að rannsaka læðu- skrokkana eftir feldun í nóvem- ber-desember í leit að ummerkj- um fósturdauða eftir 17. með- göngudag. Til endanlegs uppgjörs voru teknar niðurstöður frá 8 blá- refabúum og tveimur finnraccon- búum. Nokkrir silfurrefir voru rannsakaðir en ekki teknir með í Blárefalœða sem var talin hafa parast en reyndist geld. Lœðan hefur þó verið hvolpafull í a. m. k. 17 daga og misst samtals 15 fóstur. uppgjöri vegna þess hve fáir þeir voru. Blárefir. Læðurnar sem teknar voru með í töflurnar hér á eftir voru allar ein- til fjórparaðar og annað hvort gutu eða voru skráðar geldar. Þegar paranir voru tvær eða fleiri voru nær alltaf notaðir fleiri en einn högni, þ. e. a. s. krossparað. Þær læður sem skráð var að hefðu látið voru ekki teknar með í upp- gjöri. Sömuleiðis voru útilokaðar þær læður sem bóndinn vissi að höfðu gotið en höfðu misst undan sér alla hvolpana þegar að endan- legri talningu kom. Hvolparnir eru yfirleitt taldir á fyrstu 3—4 sólarhringunum eftir gotið. Hvolpadauði frá goti fram Blárefalœða sem gaut 11 hvolpum. Sjá má 8+9=17 bletti sem þýðir að læðan hefur misst 6 fóstur frá 17. meðgöngudegi fram að goti. Fósturdauði eftir 17. rneð- göngudag telst því 35% hjá þessari lœðu. að talningu eykur reiknaðan fóst- urdauða og verður að minnast þess þegar niðurstöðurnar eru at- hugaðar, bæði á einstökum búum og við samanburð milli búa. Hvolpar sem skráðir voru dauðfæddir en fullburða eru tekn- ir með í fjölda fæddra hvolpa. I töflu 1 sjást niðurstöður frá fjórum refabúum sem lögðu til 162 blárefalæður sem allar höfðu gotið. í töflunni sést að ársgömlu læðurnar höfðu að meðaltali fleiri legbletti og áttu fleiri hvolpa en eldri læðurnar. Það að eldri læð- urnar áttu í þessari rannsókn færri fædda hvolpa en þær ársgömlu getur verið vegna þess að tiltölu- lega fleiri fyrstaárslæður voru feldaðar og þar með lentu hlut- fallslega margar ungar læður með stór got með í rannsóknina. Tafla 1. Meðalfjöldi bletta og hvolpa og fósturdauði eftir 17. meðgöngudag, hjá blárefalæðum sem gutu. Fjöldi bletta hjá: Fjöldi hvolpa hjá: Fósturdauði hjá: Bú nr. 1 árs læðum. Eldri læðum. 1 árs læðum. Eldri læðum. 1. árs 1. Eldri 1. 1 ........ 13,6 (25) 11,5 (15) 7,4 7,0 45,7% 40,0% 2 ........ 15,6 (5) 14,3 (15) 1.0,2 12,2 34,6% 14,5% 3 ........ 12,9 (13) 11,5 (4) 9,5 9,0 26,8% 21,7% 4 ........ 13,3 (43) 11,7 (29) 6,5 4,2 51,2% 63,9% Meðaltal: 13,4 (86) 12,0 (76) 7,4 7,1 44,9% 41,0% ( ) = fjöldi læðna Freyr 619

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.