Freyr - 01.08.1986, Page 28
Tafla 2. Paraðar en geldar blárefalæður: Meðalfjöldl bletta hjá öllum geldlæð- um, meðalfjöldl bletta hjá geldlæðum með bletti og hundraðshluti geldlæðna með bletti. Hundraðshluti Meðalfjöldi bletta Meðalfjöldi bletta geldlæðna Bú nr. hjá öllum geldlæðum. hjá geldlæðum með bletti með bletti.
1 3,7 (21) 8,7 (9) 42,9%
3 5,7 (11) 9,0 (7) 63,6%
4 4,7 (77) 9,6 (34) 44,2%
5 7,7 (24) 11,5 (16) 66,7%
6 4,4 (13) 8,1 (7) 53,8%
7 8,1 (10) 11,6 (7) 70,0%
8 3,8 (19) 9,1 (8) 42,1%
Meðaltal 4,9 (175) ( ) = fjöldi læðna 9,8 (88) 50,3%
Tafla 3. Meðalfjöldi bletta og hvolpa og fósturdauði eftir 17. meðgöngudag hjá flnnraccoonlæðum sem gutu.
Fjöldi bletta hjá: Fjöldi hvolpa hjá: Fósturdauði hjá:
Bú nr. 1 árs læð. Eldri læð. 1 árs læð. Eldri læð. 1 árs læð. Eldri læð.
1 9,2 (9) 5,2 (9) 43,4%
2 9,0 (6) — 5,5 (6) 38,9%
Meðaltal 9,1 (15) 5,3 (15) 41,6%
( ) = fjöldi læðna
Fósturdauðinn var mestur hjá
unglæðunum (44,9%) sem sýnir
sömu tilhneigingu og fram kom í
norskum rannsóknum (Einarsson,
1982), en þar reyndist vera 25,2%
fósturdauði eftir 17. meðgöngu-
dag hjá ungum læðum en 14,2 hjá
þeim eldri.
Þess skal getið að í norsku
rannsókninni voru dauðfæddir
hvolpar ekki taldir með í fóstur-
dauðanum og talning hvolpanna
er sennilega nákvæmari en í þess-
ari dönsku rannsókn.
Uppgjör á fjölda fæddra hvolpa
í dönsku rannsókninni byggðist á
efnivið sem var ekki valinn í til-
raunaskyni. Það skýrir e. t. v. að
hluta þann mikla mismun á fjölda
fæddra hvolpa sem fram kemur
milli refabúanna fjögurra og
einnig hinn mikla fósturdauða.
Þessu til stuðnings skal bent á að á
refabúum nr. 2 og 3 er fóstur-
dauðinn mjög lítill, sem kenna má
talningu mjög fljótt eftir fæðingu.
í töflu 2 sést uppgjör yfir par-
aðar en geldar blárefalæður á
samtals 7 búum. Frá búi nr. 2 voru
eingöngu rannsakaðar læður sem
höfðu gotið og eru því ekki með í
töflu 2.
Alls voru rannsakaðar 175 geld-
ar læður sem höfðu að meðaltali
4,9 legbletti. Betri upplýsingar
gefur þó fjöldi bletta hjá þeim
geldu læðum sem á annað borð
höfðu legbletti. Hjá þeim voru
blettirnir 9,8 að meðaltali sem er
nokkru færra en hjá þeim læðum
sem fætt höfðu hvolpa og getið er í
töflu 1. Vegna þess hvernig læð-
urnar völdust í rannsóknina var
ekki lagt eiginlegt tölfræðilegt mat
á niðurstöðurnar en ef mismunur
á fjölda bletta er raunverulegur,
annars vegar hjá læðum sem gutu
og hins vegar geldum læðum með
bletti, hafa geldlæður með bletti
annað hvort færri frjóvguð egg og/
eða missa fleiri fóstur fram að 17.
meðgöngudegi heldur en blárefa-
læður sem fæða hvolpa.
Tafla 2 sýnir einnig að helming-
urinn (50,3%) af þeim geldu, en
pöruðu, læðum sem rannsakaðar
voru, hafa verið með fangi í meira
en 17 daga. Þetta er samhljóða
norsku niðurstöðunum.
Athugað var hvort blettir
dreifðust jafnt á hægra og vinstra
leghorn. Hjá einstaka dýri var
munur á en þegar á heildina er
litið reyndust blettirnir jafn-
dreifðir á bæði horn.
23,1% af þeim höfðu verið með
fangi lengur en 17 daga. Þessar
þrjár læður höfðu 6 legbletti að
meðaltali.
Umfjöllun og niðurstöður.
Rannsóknin var framkvæmd hjá
bændum og gaf til kynna að hjá
ársgömlum blárefalæðum væri
fósturdauði eftir 17. meðgöngu-
dag 44,9% og hjá eldri læðum
41,0%. Alls voru þessar læður
162. Blettir í legi, sem nota má
sem mælikvarða á fjölda fóstra frá
17. degi meðgöngu, voru að með-
altali flestir hjá ársgömlu blárefa-
læðunum (13,4) en voru 12,0 hjá
eldri læðunum. Enginn munur var
á fjölda bletta í hægra og vinstra
leghorni. Niðurstöðum um fóstur-
dauða verður að taka með fyrir-
vara þar sem mikill munur var
bæði milli búa og einstakra læðna.
175 geldar og paraðar blárefa-
læður voru rannsakaðar. 50,3% af
þessum geldlæðum voru með
bletti í legi, þ. e. a. s. helmingur
þeirra hafði gengið með fóstur í
17. daga eða lengur. ^ ^ ^
Finnraccoon.
Eins og áður er nefnt voru
rannsakaðar nokkrar finnraccoon-
læður. Alls urðu það 15 læður sem
fætt höfðu hvolpa (sjá töflu 3) og
13 sem höfðu parast en reynst
geldar. Vegna þess hve fá dýr
þetta eru og aðeins frá tveimur
búum verður að taka niðurstöðun-
um með nokkurri varúð.
Að meðaltali var fjöldi legbletta
hjá finnraccoonlæðum sem fætt
höfðu hvolpa 9,1, fjöldi hvolpa
5,3 og fósturdauðinn 41,6%. Eins
og hjá blárefunum var mikill mun-
ur á læðum. Eins og sést í töflu 3
fengust eingöngu 1 árs læður til
rannsóknar. Af geldu læðunum 13
voru 3 með bletti í legi, þ. e. a. s.
620 FREYR