Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2001, Side 6

Freyr - 01.06.2001, Side 6
2. mynd. INTERNORDEN- fundurinn var haldinn í rúmgóðum ráðstefnusal á jarðhæð þar sem áður var fjósið á Tjetta. (Ljósm. Ól. Dýrm.). samráði við Erling Skurdal ritara INTERNORDEN sem stýrði fundi með aðstoð starfsfólks á Tj0tta. Erling er ráðunautur í beitannálum hjá Norska sauðfjár- og geittjárrækt- arsambandinu í Ósló. Dagskráin var með hefðbundnum hætti, sambland af faglegum erindaflutningi með um- ræðum og kynnisferðum á bænda- býli, líkt og á Grænlandi þar sem síðasti fundur var haldinn fýrir tveim árum (sjá Frey, 11. tbl. 1998 bls. 29). Að venju hófst dagskráin með stuttum yfirlitserindum um stöðu sauðfjárræktar í hinum ýmsu lönd- um. Ymsir erfiðleikar steðja að bú- greininni og hún á víða í vök að verjast. í Noregi eru vanhöld á sumarbeit af völdum rándýra, svo sem úlfa, stórfellt vandamál og þar er barist gegn útbreiðslu riðuveiki. Aðild Finna og Svía að Evrópu- sambandinu hefur, ef eitthvað er, haft neikvæð áhrif á sauðfjárrækt- ina. A Grænlandi er ekki markaður fyrir ullina þótt rúið sé á húsi í mars og er hún oftast brennd, í Færeyjum er staðan svipuð en þó er nýlega hafin framleiðsla ullarfatnaðar í nýju fyrirtæki, Suðuroyar Ullar- virki. Á íslandi er samdráttur í sauðfjárframleiðslu, eins og al- þekkt er, en í Danmörku kveður við annan tón, því að þar er fjárræktin í vexti, einkum dilkakjötsframleiðsl- an. í landinu eru þó ekki nema 110.000 ær en þar er þó að fínna fé af hvorki meira né minna en rúm- lega 30 kynjum. Noregur er fjár- flesta landið með rúmlega eina milljón vetrarfóðraðar kindur. Næst var tekið fyrir meginefnið, sauðfé í búsetulandslagi, sem fjall- aði að mestu um nýtingu beitilanda við margvíslegar aðstæður. Flest fjölluðu erindin um úthagabeit, í eyjum, á strandsvæðum og til fjalla, þar með skipulega beit í skóglendi. í sumum tilvikum var um að ræða land sem hefur lífræna vottun. Áhersla var lögð á góða skipulagningu beitar þannig að æskilegu, fjölbreyttu gróðurfari sé viðhaldið á hverjum stað í anda sjálfbærrar þróunar. í þessu sam- bandi var vikið að aðgerðum til að koma í veg fyrir beitarsjúkdóma á borð við ormasýkingu og einnig skipti máli hvaða fjárkyn hentuðu á hverjum stað. Meðal annars voru kynntar rannsóknir á sauðfjárbeit í eyjum í nágrenni Tjptta og var mjög fróðlegt að fá að skoða beiti- landið líka. Sauðféð er beinlínis notað til að stýra framvindu gróð- urs, alfriðun þar er ekki talin eftir- sóknarverð og sauðfjárbúskapur í eyjunum hefur þann kost að ekki verður tjón vegna rándýra sem valda miklum skaða í landi. Að lokum voru flutt stök erindi um ýmis efni, svo sem um skemmd- ir á gærum vegna sníkjudýra, sæðingar sauðfjár, gömul norræn sauðfjárkyn, aukna fjölbreytni í framleiðslu sauðfjárafurða og upprunamerkingu þeirra, til að ein- kenna sérvörur, undirstrika gæði vörunnar og framleiðslustað. Þannig mætti skapa lambakjöti frá jaðar- svæðum á norðurslóðum sérstöðu vegna hreinleika og sjálfbærra bú- skaparhátta. í hinum rúmgóða ráð- stefnusal var sett upp lítil sýning, aðallega á ullarvörum frá öllum löndunum, og Færeyingar gáfu okk- ur að smakka skerpikjöt að þjóð- legum sið. Eg hafði meðferðis nokkra muni frá Ullarselinu á Hvanneyri sem juku á fjölbreytnina. Þess má geta að fáanlegt er fjölrit 3. mynd. Nýju gripahúsin á Tjetta. Frá vinstri talið, tilraunahús, holdanautafjós, fjárhús og flatgryfjur. (Ljósm. Ól. Dýrm.). 6 - pR€VR 8/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.