Freyr - 01.06.2001, Síða 7
með öllum erindunum sem flutt
voru á fundinum.
Kynrtisferðir
Norðmenn skipulögðu mjög
fróðlegar og skemmtilegar kynnis-
ferðir sem féllu vel að hinu faglega
efni sem tekið var fyrir á fundinum.
Við vorum einnig heppin með veð-
ur, oftast þurrt og bjart yfír þannig
að vel sást til eyja og fjalla. Lands-
lag í Norland fylki er fjölbreytt og
fallegt enda töluvert um ferðamenn
þar á sumrin. Þótt fólki fari fækk-
andi í eyjunum er enn blómlegur
búskapur víða, jafnvel mjólkur-
framleiðsla í sumum þeirra og lax-
eldi er mikið stundað þar um slóðir.
Mikið er um sumarhús og sitthvað
gert til að laða að ferðamenn. Á
meðal þekktra náttúrufyrirbrigða
eru Torghatten, lítið fjall með gati í
gegn, og De syv spstre (Sjösystra-
fjöll), fjallgarður með sjö keilulaga
tindum. Helgelandsbrúin, skammt
frá Sandnessjpen, sem var tekin í
notkun sumarið 1991, er ein
lengsta hengibrú í heimi, 1065
metrar, mjög tignarlegt mannvirki.
Skinnaiðnaður með
búskapnum
Á Homi, norðan við Brpnnpy-
sund, komum við á kúabú þar sem
stunduð er lífræn mjólkurfram-
leiðsla með 15 kúm af gamla
norska kyninu Sidet Trpnder og
Norlandsfe sem er náskylt íslensku
kúnum. Sumarbeit er nýtt til hins
ítrasta, vothey úr flatgryfjum er
undirstaða vetrarfóðrunar og fóður-
bætisnotkun er lítil. Stærri kýr, svo
sem þær rauðu norsku, sem sumir
íslenskir kúabændur líta vonaraug-
um til, eru ekki taldar henta eins vel
þar á bæ, þótt nytin sé meiri. Bónd-
inn Edy Pigato er frá Brasilíu en
kona hans er norsk. Fyrir nokkmm
ámm lærði hann sútun og verkun,
skinna í Portúgal og hefur byggt
upp lítið fyrirtæki í skinnaiðnaði.
Þau em búin að reisa 200 m2 hús
fyrir starfsemina ofan við fjósið og
sumar vélamar eru heimasmíðaðar.
Mest er um gæmsútun en allar teg-
4. mynd. I fjárhúsunum á Tjotta eru vandaðar innréttingar og góð tilraunaað-
staða. Hluti fjárbúsins er lífrænt vottaður og er sú eining borin saman við hefð-
bundna hlutann. (Ljósm. Ól. Dýrm.)
undir skinna eru í vinnslu og rekin
er verslun með vörurnar í öðrum
enda hússins. Þetta athyglisverða
smáfyrirtæki skapar töluverða
vinnu og fékk nýlega verðlaun úr
nýsköpunarsjóði sem styður at-
vinnuuppbyggingu í dreifbýli. Þeg-
ar bóndinn var að sýna okkur starf-
semina lét hann þess getið að hann
hafi fengið nokkrar lambsgærur frá
Islandi og væru þær besta hráefnið
sem hann þekkti. Þetta varð til þess
að við fómm að ræða saman og að
ósk þeirra hjóna hef ég komið þeim
í samband við aðila hérlendis sem
geta selt þeim gærur til vinnslu.
Lífrænt dilkakjöt á borðum
Á leiðinni frá Homi til Brpnnpy-
sunds komum við á snyrtilegt býli
þar sem búið var að selja mjólkur-
kvótann og aðalbúgreinin var
nautakjötsframleiðsla með Here-
ford blendingum. Fjalllendi er nýtt
fyrir lífrænan sauðfjárbúskap, 75
kindur af gamla norska fjárkyninu
5. mynd. Kindur af gamla norska fjárkyninu ganga að mestu úti í eyjum og við
strendur Hálogalands. Þar er veðrátta mildari en til fjalla. Skyldleikinn við ís-
lenska féð leynir sér ekki. (Ljósm. S. Halland).
FR6YR 8/2001 - 7