Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Síða 8

Freyr - 01.06.2001, Síða 8
ins, nýta auðlindir og sérkenni, bjóða gestum og gangandi gæðaafurðir, draga fram sérkenni þeirra og leita nýrra leiða til að afla tekna. Norska ríkið greiðir verulega styrki til þessara byggða, þar með til landbún- aðar, og bændur í lífrænum búskap fá góðan aðlögunarstuðning sem örvar þá þróun svo að um munar. Rándýrin taka sinn toll Norður í Leirfjord, skammt norðan Sandnessjóen, komum við á dæmigert norskt fjárbú þar sem féð gengur í skógivöxnu fjalllendi á sumrum en er gefíð inni vetrar- langt. Bústofninn, um 120 vetrar- fóðraðar kindur, er af hvítum, koll- óttum fjárstofni sem ræktaður hef- ur verið upp úr blöndu af norskum og erlendum fjárkynjum. Þetta bú er stærra en almennt gerist því að á meðalfjárbúi í Noregi eru 50 vetr- arfóðraðar kindur. Samhliða fjár- búinu er rekið hundahótel á jörð- inni. Allt er vel upp byggt og snyrtilegt. Féð er fóðrað á flat- gryfjuvotheyi og fóðurbætisgjöf er töluverð, einkum um burð, en ærnar bera allar inni og eru flestar tvflembdar. Að hluta voru grindur og að hluta málmristar í gólfum en úr kjallara er dælt með haugsugu. Ærnar eru með bjöllu á hálsi á sumrin til þess að auðveldara sé að finna þær í skóginum. Ekki fælir bjölluhljómurinn rándýrin í burtu en af þeim stafar víða ógn á norskum sauðfjárbúum, einkum til fjalla. Vanhöld á þessum bæ eru um 20% og víða er ástandið verra. Þótt greiddar séu bætur verða bændur fyrir verulegu tjóni og tekjutapi vegna rándýra. Að lokum ber að geta þess að á stjómarfundi í INTERNORDEN, sem haldinn var eitt kvöldið, var ákveðið að næsti INTERNORDEN fundur verði haldinn hér á landi í lok júní árið 2002. Undirbúningur hans hófst fyrir nokkru og verður hann haldinn í samvinnu við Bú- tækniskor Norræna búfræðifélags- ins - NJF. Meginefnið verður fjár- hús og tækni við sauðfjárbúskap. 6. mynd. Lítið lífrænt býli á eyjunni Tro skammt frá Tjotta með grænmetisrækt, fáeinar kindur af gamla norska fjárkyninu og íslenska hesta. Á loftinu yfir gripa- húsinu er tóvinnustofa og ferðamannaverslun.fLjósm. Ól. Dýrm.). sem íslenska féð á ættir að rekja til. Norðmenn kalla þetta fé „villsau“ enda gengur það að mestu sjálfala. Féð er líkt lítt ræktuðu íslensku fé, grófbyggt, harðgert, bæði hymt og kollótt, hvítt og mislitt og nýtir vel úthaga og fjörubeit líkt og okkar fé. Nú eru aðeins eftir um 20.000 fjár af þessu kyni í Noregi, mest í strandbyggðum, og í Norland fylki em um tveir þriðju fjár af þessu kyni á búum með lífræna vottun. Okkur var sýnt fróðlegt myndband sem sýndi féð og umhverfi þess á búinu á öllum árstímum. Þar á bæ er féð ekki hýst en náttúrleg skjól eru góð í fjallinu og gefið er út skammt frá bæjarhúsum yfir vetrar- mánuðina, eftir því sem þörf krefur. Mest af kjötinu er selt milliliðalaust því að þau hjónin reka ferðaþjón- ustu og bjóða þeim sem vilja upp á ljúffenga dilkakjötsrétti. Fyrir okk- ur hafði verið pantaður matur og settumst við öll að snæðingi í rúm- góðri stofunni. Kjötið bragðaðist mjög vel, en það er auglýst sem villibráð og náttúmafurð. Þama líkt og á Homi ríkti framsýni og vilji til að takast á við vandamál dreifbýlis- 7. mynd. Lambær af blönduðum norskum stofni hjá Ivar fjárbónda í Leirfjord. Þótt flestar ærnar fari með tvö stálpuð lömb í skóginn um miðjan júní koma að- eins um 1,4 lömb til nytja að meðaltali á haustin vegna rándýraplágu sem færist í aukana. (Ljósm. Ól. Dýrm.). 8 - pR€VR 8/2001

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.