Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2001, Page 10

Freyr - 01.06.2001, Page 10
Rúllustæður tilraunarinnar voru báðar nákvæmlega eins að stærð og gerð; hér sjáum við stæðuna sem höfð var í forsælu. Hlutfall myglulausra bagga var heldur hærra þar sem hjúpur um þá var áttfaldur (0,10 > p > 0,05). Myglumunur á milli geymslustaða var ekki marktækur (p > 0,05). Þess má geta að útbreiðsla myglunnar reyndist heldur meiri í böggunum sem geymdir voru í forsælu (1,5 og 1,5 stig undir 6- og 8-földum hjúpi) en sólarmegin (1,3 og 0,0 stig). Myglunnar gætti tíðast í botni (legufleti) bagganna. Súrmyndun í heyinu Þótt heyið væri allt fremur þurrt við hirðingu (52 og 57% þe.) og því vart að vænta mikillar gerjunar í því reyndist nokkur munur koma frarn á sýrustigi heysins eins og tölur í 3. töflu sýna: Munur á milli geymslustaða var raunar ekki marktækur. Hins vegar var munur sýrustigs eftir hjúpþykktinni marktækur (0,05 > p > 0,01). Svo virðist því sem viðbótarlögin tvö hafi dugað til þess að súrsun í heyinu varð öflugri - líklega með því að draga úr aðstreymi súrefnis til heysins. Sýrustigs- mælingarnar styðja því matið á myglunni í heyinu (sbr. 2. töfhi) og ályktanirnar sem af því voru dregnar. Meltanleiki heysins - dtlyst kúnna Sáralítill munur reyndist vera á meltanleika þurrefnis á milli liða; var hann innan skekkjumarka mæliaðferðarinnar og alls ekki marktækur. Meðalmeltanleikinn var 70,7 ± 1,0 %. Mat gjafamanna á átlyst kúnna úr hverjum bagga 2. tafla. Áhrif hjúpþykktar og geymslustaðar á myglumyndun í rúlluböggum - baggarán myglu, % Sólarmegin f forsælu Sexfaldur 70 60 Áttfaldur 100 80 * 3. tafla. Ahrif hjupþykktar og geymslustaðar á súrmyndun í rúllu- böggum - sýrustig, pH Sexfaldur Áttfaldur Sólarmegin í forsælu 5,90 ±0,10 5,83 ± 0,23 5,67 ±0,25 5,64 ±0,27 4. tafla. Áhrif hjúpþykktar og geymslustaðar á tap lífrænna efna (%) við verkun og geymslu Sexfaldur Áttfaldur Sólarmegin I forsælu 8,3 ±9,9 0,9 ±8,6 3,1 ±12,4 -0,9 ±10,8 gaf mjög eindregna niðurstöðu: all- ir baggamir fengu einkunnina A, þ.e. að kýmar átu heyið „kátar og af áfergju, leifa engu“, eins og seg- ir í einkunnarlýsingu. Eflmtap við geymslu Reynt var að meta tap þurrefnis við verkun og geymslu heysins með því að mæla glæðitap (ösku- magn) þess. Mælingin byggist á því að nota öskumagn heysins sem viðmiðun þar eð ekki verður breyt- ing á því við heygeymsluna. Tapið verður hins vegar við bruna hinna lífrænu efna. Það reiknaðist vera þetta, 4. tafla. Beytileiki í mæliniðurstöðum innan liða var mikill og liðamunur reyndist ekki tölfræðilega mark- tækur. Hneigðin var þó bærilega trúverðug; tap lífrænna efna úr 6- földum hjúp var að meðaltali 4,6% samanborið við 1,1% úr áttföldum; sambærileg meðaltöl úr böggum í forsælu og sólarmegin voru hins vegar 0,0 og 5,7%. Aréttingar í öllum tilraunarliðum tókst verkun og geymsla heysins vel. Skemmdir vegna myglu og breytingar á fóðurgildi heysins urður litlar. Merkja mátti áhrif hjúpþykktar á verkun heysins; á myglu- og súrmyndun svo og reiknað tap lífrænna efna. Ahrif þess að verja baggana geislum sólar voru óljósari enda sýndu hitamælingar í heyinu að lítill munur varð á hitastigi þess eftir geymslustöðum; mun minni en t.d. í mælingum Þórodds Sveinssonar og Bjama E. Guð- leifssonar (1999) á Möðruvöll- um í Hörgárdal. Sá litli munur á verkun, sem fram kom, var for- sælugeymslunni í vil, líkt og fram hefur komið í norskum rannsóknum (Randby 1996). Það bar þó heldur meira á myglu í böggum forsælumegin en sólamiegin. Það vakti gmn um að aðrir umhverfisþættir kynnu að hafa komið hér við 10 - pR€VR 8/2001

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.